Heimili og skóli - 01.10.1956, Blaðsíða 23

Heimili og skóli - 01.10.1956, Blaðsíða 23
HEIMILI OG SKÓLI 109 Kennarafélag EyjafjarSar 25 ára Aðalfundur Kennarafélags Eyja- fjarðar var haldinn á Akureyri laug- ardaginn 22. sept. s.l. Formaður fé- lagsins, Hannes J. Magnússon, setti fundinn. Fundarstjóri var kosinn Ein- ar M. Þorvaldsson, en ritari Eiríkur Sigurðsson. Fyrst fóru fram venjuleg aðalfund- arstörf, en að þeim loknum voru flutt eftirtalin erindi og urðu nokkrar um- ræður á eftir þeim. Vetrarstarfið (Stefán Jónsson náms- stjóri). Kristindómskennsla í heimilum og skólum (Vald. V. Snævarr, skólastj.). Norskir skólar (Eiríkur Sigurðs- son, yfirkennari). Hann sýndi einnig nokkrar norskar námsbækur og upp- eldismálarit. Stefán Jónsson námsstjóri flytur rœðu. Ýmislegt um uppeldismál (Þórarinn Björnsson, skólameistari). Um kennslutækni (Steingrímur Bernharðsson, skólastj.). Hann sýndi ýmis kennslutæki til notkunar við lestrar- og reikningskennslu, sem ekki hafa sézt hér áður. Einnig var þarna sýndur nýr, danskur skólapenni, „Penól“-penninn, sem gerður er eftir fyrirsögn danskra skriftarsérfræðinga. En Ihann fæst nú hjá ,,Penól“-umboð- inu á Akureyri. Loks flutti dr. Matthías Jónasson erindi nm erfiðleika við kennsln van- gefinna og afbrigðilegra barna, og skýrði þar m. a. frá 'hvernig uppeld- isfræðilegar rannsóknir geta komið þar að góðu gagni. Fundinn sóttu 45 kennarar auk gesta. Sameiginleg kaffidrykkja var að Hótel KEA, en þar rakti Hannes J. Magnússon sögu félagsins í fáum dráttum þessi 25 ár, er það hefur starf-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.