Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 25

Heimili og skóli - 01.10.1956, Side 25
HEIMILI OG SKÓLI 111 Kennarafunclur á Vesturlandi 14. aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða var haldinn á fsafirði dagana 13. og 14. október. Formður félagsins, Jón H. Guðmunds- son, setti fundinn með rœðu. Forsetar voru kosnir: Sveinn Gunn- laugsson, Flateyri, og Friðbjöm Gunn- laugsson, Patreksfirði. Ritarar voru kosnir: Guðm. Ingi Krist- jánsson og Guðni Jónsson. Á fundinum voru mættir 32 kennarar af félagssvæðinu og auk þess námsstjórarnir Snorri Sigfússon og Þórleifur Bjarnason. Kennarar barnaskólans á ísafirði buðu öllum til kaffidrykkju á kennarastofu barnaskólans. Erindi á fundinum fluttu: Þórleifur Bjarnason, námsstjóri: Sögu- kennsla í skólum. Snorri Sigfússon, námsstjóri: Uppeldis- gildi sparnaðar. Ragnar H. Ragnar, skólastjóri: Söng- kennsla í skólum. Meðal ályktana, er fundurinn gerði, voru: 1. Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða álítur, að sparifjársöfmm skólabama, sem Snorri Sigfússon, námsstjóri, hefur haft frumkvæði að og barizt fyrir, sé fyrst og fremst þýðingarmikið og merkilegt upp- eldismál, sem miðar að siðgæðisþroska barna og unglinga. Þá hefur félagið komið sér upp dá- litlu bókasafni, og eru í því nær ein- göngu bækur um uppeldis- og kennslufræðileg efni. Bækurnar eru lánaðar félagsmönnum. Stefán Jónsson námsstjóri árnaði fé- laginu heilla á afmælinu og Snorri Sigfússon rifjaði upp gamlar minning- ar. Hann er nú heiðursfélagi Kenn- arafélags Eyjafjarðar. Félaginu barst heillaskeyti frá fræðslumálastjóra. Núverandi stjórn félagsins skipa: Hannes J. Magnússon, formaður, Ei- ríkur Sigurðsson, ritari, og Páll Gunn- arsson, gjaldkeri. A fundinum urðu miklar umræður og samþykktar nokkrar ályktanir og meðal annars eftirfarandi: „Aðalfundur Kennarafélags Eyja- fjarðar, haldinn á aldarfjórðungs af- mæli þess, telur að sú staðreynd blasi nú þegar við augum, að hugur hinna yngri kynslóðar stefni nú meir frá framleiðslustörfum og líkamlegri vinnu en telja verður æskilegt með fá- mennri þjóð í lítt numdu landi. Lítur fundurinn svo á, að þótt benda megi á ýmsar ytri orsakir til þess fyrirbæris, þá kunni þó aðrar og lítt athugaðar ástæður að valda hér miklu um. Þess vegna telur fundurinn æski- legt, að ríkisstjórnin skipi nefnd hæfra manna til þess að at’huga uppeldis- hætti þjóðarinnar nú, skemmtanalíf og lífsvenjur með það fyrir augum, að leitað sé að ágöllum, sem á þessum þáttum í uppeldi hennar og menn- ingu kunna að leynast og tillögur gerðar til úrbóta.“ Fundinum var slitið laust fyrir mið- nætti á laugardagskvöld. Rúmlega 50 kennarar eru nú í Kennarafélagi Eyjafjarðar. — E. S.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.