Heimili og skóli - 01.10.1956, Síða 26
112
HEIMILI OG SKÓLl
Þar af leiðandi ber foreldmm, kennur-
nm og öðrum þeim, er bera umhyggja fyr-
ir æskulýð landsins, að veita máli þessu
allan þann stuðning, sem auðið er.
2. A) Aðalfundur Kennarafélags Vest-
fjarða samþykkir að beina þeim tilmæl-
um til fræðslumálastjórnarinnar, að hún
hlutist til um, að Kennaraskóli íslands
leggi meiri rækt við það en verið hefur,
að búa nemendur sína undir kennslustörf
í söng, svo að skólarnir reynist þess full-
komlega megnugir að gegna hlutverki
sínu á því sviði sem öðrum.
B) Fundurinn telur, að nám fagurra, ís-
lenzkra ljóða og sígildra sönglaga sé ár-
angursríkasta leiðin til að vinna gegn og
kveða niður ómenningu þá, sem stafar af
auðvirðilegum og ómerkilegum dægurlög-
um og dægurlagatextum, sem flestir eru
af erlendum rótum runnir.
Sökum þess telur fundurinn það aðkall-
andi, menningarlega nauðsyn, að meiri
alúð og rækt sé lögð við söngkennslu í
barna- og unglingaskólum landsins, og
telur að því fé sé vel varið, sem til þess er
veitt.
3. Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða
lýsir yfir, að hann er því eindregið fylgj-
andi, að Ríkisútgáfu námsbóka verði falið
að hafa á hendi verzlun með öll þau
kennslutæki, sem nauðsynleg eru talin
hverju sinni fyrir skólaskyldustigið. Jafn-
framt sé séð um það, að öll slík kennslu-
tæki séu seld á sem hóflegustu verði.
4. Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða
beinir þeim tilmælum til Ríkisútgáfu
námsbóka og Fræðslumálastjórnarinnar,
að sjá um, að út verði gefnar sem fyrst
myndir til starfrænnar kennslu í öllum
lesgreinum barnaskólastigsins. Jafnframt
beinir fundurinn því til Þórleifs Bjarna-
sonar, námsstjóra, að hann leggi áherzlu á
að fá gefnar út myndir þær, sem Gunn-
laugur Sveinsson, kennari á Flateyri, hef-
ur gert til notkunar í íslandssögukennslu.
Fundurinn telur nauðsynlegt, að prenta
eða fjölrita myndimar á vinnubókarblöð,
svo að kennarar geti hagnýtt sér þær á
auðveldan og aðgengilegan hátt í starfinu.
Auk þess verði upplagið haft svo stórt, að
hverju bami sé mögulegt að eignast þær.
5. Aðalfundur Kennarafélags Vestfjarða
lýsir því yfir, að hann fordæmir harðlega
útkomu þeirra glæpa- og sorprita, sem
svo mjög hefur borið á að undanförnu og
stöðugt eru að fjölga. Jafnframt bendir
fvmdiuinn á, að fjölmargir ábyrgir aðilar,
bæði félagssamtök og viðurkenndir menn-
ingarfrömuðir hafa sýnt fram á, að þau
hefðu siðspillandi áhrif á æsku landsins.
Fundurinn beinir því þeim tilmælum til
forsvarsmanna þjóðarinnar og löggjafar-
valdsins, að gerð sé tafarlaust gagnskör að
því að stöðva útkomu slíkra rita.
f stjórn félagsins voru kjörnir:
Guðni Jónsson, ísafirði, formaður.
Kristján Jónsson, Hnífsdal, gjaldkeri.
Guðmimdiu- Ingi Kristjánsson, Mos-
vaHahreppi, ritari.
HEIMILI OG SKÓLI
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
Útgefandi: Kennarafélag EyjafjarÖar.
Ritið kemur út i 6 heftum á ári, minnst
24 síður hvert hefti, og kostar árgang-
urinn kr. 25.00, er greiðist fyrir 1. júní.
Útgdfustjórn:
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Eirlkur Sigurðsson, yfirkennari.
Páll Gunnarsson, kennari.
AfgreiÖslu- og innheimtumaöur:
Ámi Bjömsson, kennari, Þómnn-
arstræti 108, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Pósthólf 183. — Akureyri.
Sími 1174.
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.