Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 10

Heimili og skóli - 01.02.1959, Side 10
4 HEIMILI OG SKÓLI lilusta. Skólanemendum gengur illa að læra hana og fulltíða mönnum getur einnig gengið það illa. Útvarpið þjálf- ar menn ekki í þessari íþrótt. En kann- ski er hér líkt á komið fyrir útvarpinu og skólunum? Ég held að við kennarar tölum of rnikið við nemendur okkar, svo að þeir verða þreyttir af að hlusta á okkur. Ég held að útvarpið flytji okkur of mikið efni, miðað við það að hlustendur kunna ekki með útvarps- efnið að fara. Það venur menn af að hugsa og hlusta, en hvort tveggja er hættulegt. Ég held því, að það mætti stytta dagskrána að verulegu leyti öll- um að skaðlausu, en þróunin gengur nú í öfuga átt, svo að líklega verður ekki nenra blánóttin friðuð. Hamingj- an hjálpi þeim, sem af engu vilja missa! Enginn efi er á því, að útvarpið hef- ur, þrátt fyrir allt, hjálpað til að halda fjölskyldunni saman á hinum síðustu upplausnartímum, þótt ekki hafi hrokkið til. En svo virðist þó, sem það nái yfirleitt ekki hlustum hinna ungu. Enda lítið til þess gert. Útvarpsefni fyrir börn hefur aldrei verið meira en nú, en efni fyrir unglinga frá 14 ára til tvítugs er harla lítið, nema ef nefna skyldi „lög unga fólksins“ og aðra svipaða þætti með nauða ómerkilegri og menningarsnauðri tónlist. Ég hef stundum verið að hugsa um það, hvort unga fólkið ætti það skilið, að þessi þáttur væri kenndur við það, og lík- lega er það svo í raun og veru, því að fátt eitt mun það hlusta á af meiri at- hygli. En ef þetta er svo í raun og veru, að þetta séu lög unga fólksins, hvernig fer þá með framtíðina? Hver verður tónsmekkur þjóðarinnar á næstu ára- tugum? Hvað syngur unga fólkið á samkomum sínum og gleðistundum? Fyrir nokkrum áratugum tengdu þjóðlögin og ættjarðarlögin alla ís- lendinga saman í einn kór. Þá gátu ungir og gamlir sungið saman. Þá átt- um við fáa eða enga tónlistarmenn. Þá var heimilistónlist allmikil. En þótt hljóðfæri séu nú á miklu fleiri heim- ilum en þá, er heimilistónlist á undan- haldi. Hún stenzt ekki samkeppni við útvarpið. Nú eigum við kost á háþróaðri tón- list, sem almenningur hefur horn í síðu, en við eigum einnig kost á að heyra, og allt of greiðlega, menning- arsnauða tónlist, sem nú er farið að kenna við unga fólkið og glymur á mörgum íslenzkum heimilum. Ætt- jarðarlögin eru að hverfa. Þau voru að vísu fábrotin tónlist, en þjóðleg. Hér hvílir mikil ábyrgð á útvarp- inu, eins og á mörgum öðrum sviðum. Það er að verulegu leyti á þess valdi, hveniig þessum málum skipast í fram- tíðinni. Þarna eru skólarnir og heim- ilin allt of veik til að styrkja útvarpið í þeirri viðleitni að venja almenning á æðri tónlist. Það þarf að finna þarna heppilegan meðalveg. Létt tónlist á fullkominn rétt á sér, en helzt ekki þessi „öskurtónlist.“ Hún á engan rétt á sér, frekar en glæpasögur. Ég kem svo að því aftur. Gæti út- varpið ekki fundið eitthvað annað efni, sem hentar ungu fólki, en jass og rokk og hvað það nú heitir allt saman. Það gæti svo verið sérstakur kapítuli út af fyrir sig að tala um textana við þessi lög, sem útvarpið leyfir sér að flytja hlustendum, þótt þeir eigi ekki allir óskilið mál.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.