Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 20

Heimili og skóli - 01.02.1959, Page 20
14 HEIMILI OG SKÓLI Fimmtugur: Theódór Daníelsson, kennari Á kyndilmessu, þann 2. febrúar síð- astliðinn varð Theódór Daníelsson, kennari á Akureyri fimmtugur. Hér verður þessara tímamóta minnst með nokkrum orðum. Theódór Daníelsson er fæddur að Hvallátrum í Breiðafirði 2. febrúar 1909. Foreldrar hans voru hjónin Dan- íel Jónsson og María Guðmundsdóttir. Báða foreldra sína missti hann meðan hann var í barnæsku. Móðir hans lézt, þegar hann var 4 ára, en faðir hans drukknaði ásamt elzta syni sínum sum- arið 1915, þegar Theódór var 6 ára gamall. Ólst hann upp í Hvallátrum hjá Ólafi Bergsveinssyni og Ólínu Jónsdóttur föðursystur sinni ásamt þrem systkinum sínum. Hugur Theódórs hneigðist snemma til mennta, enda hafði hann góða námshæfileika. Las hann undir skóla hjá séra Stefáni Björnssyni að Hólm- um í Reyðarfirði og var einnig á Skútustöðum í Mývatnssveit og nam þar hjá Þóri Steinþórssyni og séra Her- manni Hjartarsyni. Var hann alls á Skútustöðum í hálft þriðja ár og telur séra Hermann einhvern mesta mann- kostamann, er hann hefur kynnzt og hélzt með þeim innileg vinátta meðan séra Hermann lifði. Að loknu þessu heimanámi settist Theódór í 2. bekk Kennaraskólans haustið 1930 og tók kennarapróf 1932. Þá kenndi hann í byggðum Breiða- fjarðar í 14 ár — lengst í Reykhóla- sveitinni í 10 ár. Að Glerárskólanum kom hann 1946 og kenndi þar í 4 ár, en varð kennari við Barnaskóla Akur- eyrar 1950, en fluttist þaðan að nýja Oddeyrarskólanum haustið 1957, þeg- ar hann tók til starfa. Þetta er í stuttu

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.