Heimili og skóli - 01.02.1959, Qupperneq 23

Heimili og skóli - 01.02.1959, Qupperneq 23
HEIMILI OG SKÓLI 17 í bók sinni „Nýjar menntabrautir", bls. 72, um börn með GV 85—75: „Mestur hluti þessa hóps eru líkam- lega heilbrigð börn, en námið sækist þeim erfiðlega og vekur þeim sjaldan áhuga.“ Einnig segir hann á bls. 71— 72: „Börn með greindarvísitöluna 75— 50 eru afar tornæm og eiga því erfitt með allt nám, einkum bóklegt, og öll flóknari störf.“ Enn segir próf. Matt- hías Jónasson í sömu bók, bls. 71: „Greindarvísitalan 50 og lægri sýnir, að börn þau, sem um ræðir, eru ekki skólahæf. Þau verða aldrei læs“ . . . Eins og sést á því, sem tekið hefur verið upp úr Nýjum menntabrautum, má skipta þessum vangefnu börnum í 3 flokka, og þarf hver flokkur kennslu og uppeldi við sitt hæfi: GV 85—75 Hæf til nokkurs bóknáms. — 75—50 Lítt hæf til nokkurs bókn. — frá 50 Ekki skólahæf. Það er rétt að gera nú tveimur fyrri flokkunum, sem taldir eru að ofan, nánari skil, vegna þess að þeir snerta skólann. Síðasti flokkurinn er ekki skólahæfur og verður því lítið fjallað um hann í þessari grein. Börn sem hafa GV 85—75, hafa mjög litlar gáfur til bóknáms og falla því mjög illa inn í það fræðslukerfi, sem gerir ráð fyrir nær einhliða bók- námi. Þessi börn eru ekkert afbrigði- leg í útliti, og hættir foreldrum og jafnvel kennurum því oft til að kalla það leti, sem stafar af algjöru getu- leysi. Viðbrögð foreldra eru þá oft óánægjunöldur og gagnslausar brýn- ingar, en keúnarinn beitir eftirsetum til refsingar. Litið er með vanþóknun á úrlausnir verkefna, án þess að gengið sé nægilega vel. úr skugga um, hvort úrlausnin er í samræmi við getu nem- andans. Slík framkoma við börn ber að sjálfsögðu neikvæðan árangur. Börnin gefast upp og hætta jafnvel að hirða um að leysa þau verkefni, sem annars mundu hæfa getu þeirra. Ekkert er börnum skaðlegra í skólastarfi en upp- gjöf gagnvart viðfangsefninu, þ. e. náminu í heild. Vegna þess að huglæg skoðun, hug- læg tenging og rökræn hugsun eru mjög óþroskaðir eiginleikar hjá van- gefnum börnum, verður að beita öðr- um aðferðum til þess að ná til hvers barns. Það verður að sýna eða teikna, það sem talað er um, handf jatla það og vinna með því. Vinnan við námsefnið er aðalatriði. Kennsla, sem byggð er á frásögn, án verkrænnar þátttöku þess- ara barna, missir marks. Skynjanir van- gefinna barna eru mjög ónákvæmar og þokukenndar. Þau greina ekki auka- atriði frá aðalatriðum. Margt það, sem virðist hroðvirkni, byggist á hinni óná- kvæmu skynjun. Þess vegna er það höfuðatriði í kennslu þessara barna að leiða þau nær nákvæmari skynjun með hógværum ábendingum á göllum verksins, ásamt því að gleðjast yfir því, sem vel er gert. Endurtekningar á svip- uðum handtökum og handbragði eru nauðsynlegar. Ekki er mikil hætta á, að þau verði leið á verkefninu vegna endurtekninga. Því betur sem þau fá vald yfir verkefninu því ánægðari eru þau að vinna það, og svo lengi sem vart verður við framför í verkinu, hef- ur það þýðingu fyrir börnin. Af framansögðu sést, að nám þessara barna sækist mjög seint, þótt réttum aðferðum sé beitt og þeir hæfileikar sem börnin ráða yfir, séu nýttir til hins ýtrasta. Það er mjög áríðandi að gera ekki tilraun til að kenna annað eða meira en börnin ráða við. Einnig verður að gæta þess„ að hraði námsins sé í samræmi við persónulegan hraða nemandans.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.