Heimili og skóli - 01.02.1960, Page 13
HEIMILI OG SKÓLI
7
Ingimar Eydal kennari látinn
Ingimar Eydal, kennari og ritstjóri,
andaðist þann 28. desember síðastlið-
inn, 86 ára gamall. Hann er fæddur
að Stekkjarflötum í Eyjafirði 7. apríl
árið 1873. Foreldrar bans voru þau
hjónin Jónatan Jónsson, bóndi í
Skriðu í Eyjafirði og kona hans, Sig-
ríður Jóhannesdóttir. Þau voru fátæk
eins og flest alþýðufólk í þá daga og
varð Ingimar snemma að fara að
heiman til að vinna fyrir sér. Þrátt
fyrir fátækt, tókst honum að afla sér
góðrar menntunar, fyrst í Gagnfræða-
skólanum á Möðruvöllum, en síðar í
Skotlandi og í Askov í Danmörk. Þeg-
ar heim kom tók hann að stunda
kennslu. Fyrst í Eyjafirði, en síðar við
Barnaskóla Akureyrar, og kenndi
hann þar í 30 ár og naut virðingar og
vinsælda. Jafnframt fékkst hann mjög
við opinber mál. Hann var í bæjar-
stjórn Akureyrar í 17 ár og lengi for-
seti hennar. Annars var ritstjórn ann-
að ævistarf hans. Hann var ritstjóri
Dags samtals í 20 ár. Þá vann hann
mikið í þágu samvinnufélaganna og
var í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
samfleytt í 34 ár. Ingimar var góðum
gáfum gæddur. Hann var prýðilega
vel ritfær, en sýndi jafnan hinn mesta
drengskap í stjórnmálabaráttunni,
því var hann vinsæll af öllum, og eigi
síður af andstæðingum sínum. Hann
var mikill og sterkur ræðumaður og
skeleggur baráttumaður fyrir hug-
sjónir sínar.
Ingimar Eydal var ágætur kennari
og skemmtilegur félagi. Þótt hann
væri alvörumaður, bjó hann samt yfir
mikilli kímnigáfu, og var því gott
með honum að vera. Þær kennslu-
greinar, sem honum þótti vænst um,
voru móðurmál og saga. Ingimar var
fjölhæfur maður og verður að telja
Iiann einn af merkustu mönnum sinn-
ar stéttar á fyrri hluta þessarar aldar.
Hann hætti kennslu sökum aldurs ár-
ið 1938.
Hann var kvæntur ágætri konu,
Guðfinnu Jónsdóttur, var hún ættuð
af Fljótsdalshéraði og áttu þau 5
mannvænleg börn.
Þess má að lokum geta, að Ingimar
var lengi í stjórn Kennarafélags Eyja-
fjarðar og um leið útgáfustjórn þessa
rits. Lleimili og skóli vottar honum
virðingu og þökk fyrir langt og far-
sælt starf að uppeldis- og kennslumál-
um. Guð blessi minningu hans.
H. J. M.