Heimili og skóli - 01.02.1960, Síða 16

Heimili og skóli - 01.02.1960, Síða 16
10 HEIMILI OG SKÓLI samvizkubiti. Hann þarf að vita, að allt þetta eru liðir í þroskaferli hans, þegar' barn er að breytast í fullvaxta mann. Ef hann veit það, þarf hann ekki að taka hverju fyrirbæri með ótta 02' kvíða. o Þessu byrjunarskeiði kynþroskaald- ursins fylgir mikið svitalát. Til þess að koma í veg fyrir hina óþægilegu svitalykt, er nauðsynlegt að drengur- inn þvoi sér reglulega um allan líkam- ann og viðhafi að öðru leyti fullkom- ið hreinlæti. Og svo loksins fer hon- um að vaxa skegg! Þetta er merkisvið- burður í lífi drengjanna, ekki sízt hinna seinþroskuðu, sem farnir eru að þjást af vanmáttarkennd gagnvart öðrum, jafnöldrum, sem þarna eru komnir á undan þeim. Félagsleg samhæfni. Allar líkamlegar breytingar kyn- þroskaskeiðsins hafa í för með sér sál- rænar truflanir. Þetta kemur ekki sízt fram í tilfinningalífinu. Öll kirtla- starfsemi líkamans breytist, en um leið vaxa unglingarnir og þroskast andlega. Þetta hvort tveggja veldur því, að hið andlega jafnvægi fer úr skorðum. Skapsmunirnir taka sífelld- ar sveiflur. Unglingarnir verða að samhæfa sig þeim nýju viðhorfum, sem líkamlegar breytingar hafa í för með sér ,og það er ekki alltaf svo áuð- velt. Jafnframt þurfa þeir á nýjan leik að fara að samhæfa sig samfélag- o o inu, þegar þeir eru ekki lengur börn. Þeir þarfnast þolinmæði og aftur þol- inmæði af þeim eldri. Það er raunar ekki svo mikið, sem við getum fyrir þá gert. Helzt er þó það að reyna að skilja þá, taka létt á erfiðleikum Jreirra. Við, hinir fullorðnu, ættum kannski helzt að taka okkur í munn orð hermannsins, sem var spurður að því, hver væri fyrsta skylda hans á hverjum morgni. Hann svaraði: „Að hafa fægt byssuna kvöldið áður.“ Við eigum einnig að hafa það að reglu að fægja byssuna kvöldið áður. Það er að segja: Við verðum að brxa okkur undir það, að vera vaxin því uppeldisstarfi, sem bíður okkar, og við verðum að hafa gefið drengjunum okkar þær upplýsingar og leiðbein- ingar ,sem þeir eiga heimtingu á. Og við verðum að gera það áður en erfið- leikar kynþroskaskeiðsins hefjast. (Framh.). Hamingjusöm bernskuár. „Ég vildi óska, að öll börn ættu Jxess kost að dvelja fyrstu tíu ár ævinnar fjarri götum borga og bæja. Ef ég hefði átt börn sjálfur, hefði ég viljað fórna miklu til að geta búið í sveit — og ekki aðeins vegna líkamlegrar heilsu barnanna. Ég hefði viljað láta þau alast þar upp til þess að þau eignuðust minn- ingar um gróður jarðar, minningar um him- in, sem ekkert skyggði á, og angandi mold. Allt þetta hjálpar börnunum til að sjá hlut- ina í réttu ljósi. Á þessum bakgrunni myndi allt það, sem síðar drífur á daga þeirra, öðl- ast meiri fyllingu en hjá þeim börnum, sem alast upp í bæjunum. Bæja- og borgabörn eiga engar rætur. Þau eru fljót að hugsa, eru snögg í hreyfingum og búa yfir talsverðri mannþekkingu, en þau eru samt óþroskaðri. Án þess að eiga minningar um lífið í sveit- inni sem eins konar bakgrunn lífsins, verðum við aldrei það, sem við gátum orðið. Jafnvel Jxótt ég elski borgina mína, stend ég í mikilli þakklætsskuld við sveitina, þar sem ég lifði mín bernskuár. Þegar ég er áhyggjufullur, leita ég aftur og aftur til þessara hamingju- sömu bernskudaga. Og ég hef alltaf fundið huggun og sálarfrið í minningunum um angandi mold og litla þorpið mitt í sveit- inni.“ — Thomas Burke.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.