Heimili og skóli - 01.04.1970, Side 20
BJARNI BJARNASON, LÆKNIR:
HVER
VILL
DEVJA?
LAMCiAlt l>ICi Al> II IÍTI A ItEVKINIilIN?
Inngangur.
Flest fólk vandist sígarettunni af fikti og
yfirleitt reyndist það frekar auðvelt, áður
en varir er það á valdi vanans. Ollum reyn-
ist erfiðara að komast yfir hann en að láta
hann ná tökum á sér. Þegar fólk er einu
sinni byrjað að reykja, heldur það áfram
vegna þess að því finnst það þurfa þess. Við
verðum að viðurkenna að flestum finnst
erfitt að svipta sig þessari nautn. Að
ákvarða framkvæmdina og einbeita sér að
því að láta ekki undan er það sem allt velt-
ur á, til að sigrast á reykingum. Engin töfra-
lækning er til og lesendur, sem bjuggust við
því að þessi grein kæmi með einhverja ein-
falda lausn, geta þegar hætt að lesa. Þessi
grein er ávarp til þín, ef þú ert raunveru-
lega áhyggjufullur vegna þess að þú reykir.
Hún tékur enga ákvörðun fyrir þig, en hún
getur lagt á borðið nokkrar staðreyndir til
að staðfesta þig í ákvörðuninni að reykja
ekki og gefið nokkrar raunhæfar leiðbein-
ingar, sem byggjast á reynslu þeirra, sem
hafa unnið sigur. Sjúkdómshættan er opin-
ber hverjum reykingamanni, en tækifærin
til að brjóta venjuna eru hagstæð, auk þess
er um mikinn heilsufarslegan ávinning að
ræða, peningasparnað og bætta aðstöðu til
að beita áhrifum meðal fjölskyldunnar og
annarra. Skynfærin skerpast og ná sér, sér-
staklega ilman og smekkur og það veitir
fullnægju að hafa sigrazt á hættulegum
ávana. Að hætta reykingum krefst fórnar,
en hún hefur í för með sér allan þann ávinn-
ing, sem því fylgir að vera ekki reykinga-
maður. Fólk getur farið í reykingabindindi
æ ofan í æ og brotið það jafnt og þétt, en
þeir sem taka það í sig að hætta með öllu
tekst það venjulega.
Alvarlegur vandi.
Ef þú ákveður að hætta reykingum, er
það sennilega vegna þess, að þú vilt losna
við yfirvofandi sjúkdómshættu, sem af þeim
40
HEIMILI OG SKÓLI