Heimili og skóli - 01.04.1971, Blaðsíða 8

Heimili og skóli - 01.04.1971, Blaðsíða 8
Heimanámið litið Kennaramenntunin Laun kennara Fámennt kennaralið elur upp æsku heils bæjartélags Börnin taka kennarana til fyrirmyndar e. h. Bekkjarkennarinn kennir þeim flestar námsgreinar og annast að- eins þá einu deild. Hádegisverður er fram reiddur í skólanum, börnin koma í röð með bakkana og þau eldri skammta matinn. Stúlkurnar í eldhúsinu hafa þar aðeins yfirumsjón. Kennari merkir við þau börn er máltíðir fá, en þær eru greiddar mánaðarlega og verðið miðað við greiðslu á matarefni. Víða greiða bæjarfélögin fyrir fátæk börn. Að skóladegi loknum hafa börnin lítið heimanám og að jafnaði ekki yfir helgar. Álitið er, að þá eigi börnin frí eins og þeir fullorðnu. Ekki sé rétt, að þau ein þurfi að vinna, er aðrir hvílast. Af þessu sést, að framkvæmd námsins, er mjög bundin húsnæðinu. Kennaramenntun barnakennara hefur farið fram í Kennaraskóla Is- lands. Námið er 4 ára sérnám eftir gagnfræða- eða miðskólapróf með tilskyldum lágmarkseinkunnum. Þá hafa stúdentar tekið kennarapróf eftir eins til tveggja vetra nám. Nú liggja fyrir Alþingi drög að lögum um breytta kennaramenntun. Þar er gert ráð fyrir að skólinn verði kennaraháskóli, þar sem kennaranemar hefji sérnám, að loknu stúdents- prófi. Þannig yrði skólinn hliðstæður sambærilegum skólum á hinum Norðurlöndunum. Komi þetta til framkvæmda, óttast margir að útilok- að reynist að fá menntaða kennara við sveitaskóla og í fámenn kauptún. Byrjendalaun kennara eru nú um 21 þúsund á mánuði, er greiðist 12 mánuði á ári og vinnuskyldan 40 stundir á viku í 11 mánuði. Þar sem kennarar vinna ekki nema 9 mánuði á ári í kennslustarfinu, verða þeir að skila 49 stunda vinnuviku á starfstímanum. Þessa staðreynd gera sér fáir ljósa. Margar stéttir þjóðfélagsins gætu einnig haft þriggja mánaða sumarfrí, ef þær skiluðu 49 stunda vinnuviku aðra mánuði ársins. Laun kennara skipta miklu máli, þar sem erfitt er að fá kenn- ara, því að meðan næg atvinna er, þá munu kennarar sem aðrir setjast þar að sem þeir helzt vilja dvelja og ekki binda sig eingöngu kennslu- störfum. Ef rétt væri á haldið, þyrfti að vera hægt að velja úr þjóðinni til kennslustarfa og foreldrar vita, að góðum kennara verður varla greitt of mikið. Hér á Akureyri eru innan við 60 manns, er að nokkru leyti ala upp og kenna öllum börnum bæjarbúa. Það hlýtur að vera nokkurs virði, að þar sé valinn maður í hverri stofu. Eg vil um leið undirstrika það álit mitt, að ég tel að skólarnir á Akureyri hafi jafnan haft óvenju- lega samstætt og gott kennaralið, það sanna mýmörg dæmi, en hinu meg- um við ekki gleyma, að séu umsóknir ekki fleiri en stöðurnar, er það heppnin sem ræður, en ekki val þeirra, sem við eiga að búa. Við vitum öll, að börn taka mjög eftir hegðun og framkomu kennaranna og þau eru harðir gagnrýnendur. Þá kennara er þau laðast að taka þau til fyr- irmyndar á édnn eða annan hátt, beint eða óbeint. Framhald. 28 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.