Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 15
Tryggvi þorsteinsson, skólastjóri
sextugur
SÉ ANDINN ungur, verður aldurinn aðeins
skref í átt til fleiri og stærri afreka. Tryggvi
Þorsteinsson er einn þeirra manna er ellin
nær lítt að merkja sér. Hann hlær, björtum
hlátri, með kynslóð morgundagsins og leið-
ir litlar hendur á braut til aukins þroska, af
sama kappi, góðvild og umhyggju er ætíð
áður hefur einkennt starf hans sem uppal-
anda.
Kvæntur er hann Rakel Þórarinsdóttur
frá Kollavík í Norður-Þingeyjarsýslu.
Börn þeirra eru þrjú og öll uppkomin.
Er ungir og aldnir vinir heimsóttu þau
hjónin í tilefni afmælisins, laugardaginn 24.
apríl, var þeim tekið af alkunnri rausn, er
fylgt hefur heimilinu og er hluti af viðhorf i
þeirra hjóna til nágrannanna, samslungið
íslenzkri gestrisni.
Urn 1957 lágu leiðir okkar Tryggva sam-
an. Mér sem öðrum, er honum hafa kynnzt,
var strax ljóst, að hann er óvenjulega traust-
ur og réttsýnn. Þá var hann kennari í Barna-
skóla Akureyrar, en starfaði auk þess flest
kvöld vikunnar að öðrum þáttum uppeldis-
mála svo sem skátastörfum og gæzlustörf-
um í æskulýðsheimili stúkunnar að Hótel
Varðborg. Eg var þá umsjónarmaður hótels-
ins, ungur í kennarastarfi og fann að af
Tryggva mátti margt mikilvægt nema.
Nokkru síðar varð hann yfirkennari við
skólann og til þess valinn af Hannesi J.
Magnússyni skólastjóra og rithöfundi. Um
1964 tók hann við skólastjórn og hefur gegnt
því starfi síðan með miklum ágætum. Við
skólastjórnina setur hann markið hátt og