Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 20
maður að vinna með öðrum, verður maður
að geta gert sér grein fyrir, að það verður
að vera forysta, og að það getur verið nauð-
synlegt að viðurkenna mistök, jafnvel ósig-
ur. Tii að geta verið óháður, verður maður
að hafa styrk til að halda sinni eigin skoð-
un réttlætis og óréttlætis, auk þess þolin-
mæði til úthalds, hæfileika til að hvetja og
tala um fyrir öðrum, þekkingu til að finna
beztu lausnirnar.
Slíkir hæfileikar þróast aðeins með
strangri vinnu og langri reynslu. En launin
eru erfiðisins verð. Ef nógu margt æskufólk
er fúst að taka á sig áhættuna, getur það
unnið sjálfu sér og samfélaginu meira gagn
en nokkur önnur kynslóð áður.
Þýtt I. E.
OddcyrarshAlanom slitit
ODDEYRARSKÓLANUM á Akureyri svar slitið
28. maí sl. Nemendur í vetur voru 482 í 19
bekkjadeildum. Barnaprófi luku 90 börn og hlutu
11 þeirra ágætiseinkunn.
Dagana 25.—27. maí, minntist skólinn 50 ára
afmælis S.I.B. og 100 ára afmælis barnafræðsl-
unnar á Akureyri, með veglegri sýningu á vinnu
barnanna. Auk þess var foreldrum boðið til
kynningardagskrár varðandi skólastarfið. Fór
bún fram á sal og flutt af rúmlega 100 börnum.
Sóttu þessa kynningu á fimmta ihundrað fullorð-
inna, auk skólabarnanna, eða samtals um 900
rnanns. Þar að auki skoðaði fjöldi fólks aðeins
sýninguna.
í vetur hefur mikið verið unnið í skólanum og
gerðir margir fallegir munir.
Til nýbreytni má telja, að elztu börnin unnu í
frístundum að málun glermynda, svo og að gera
vinabæjamerki Akureyrar, auk bæjarmerkisins,
skjaldarmerki íslands og stöfum Oddeyrarskól-
ans. Er merkjunum komið fyrir á stöplum úti
fyrir sikólanum, en glermyndirnar skreyta glugga
hans.
Skákíþróttin hefur nokkuð verið stunduð í vet-
ur. Lauk henni með keppni. Vann Ingvar Þór-
oddsson og ihlaut til eignar fagran verðlauna-
pening og titilinn „skákmeistari Oddeyrarskólans
1971“. Ingvar hlaut einnig verðlaunapening fyr-
ir bezta brautartíma í svigi, en Vilhelm Þorsteins-
son framkvæmdarstjóri hefur ætíð gefið skólan-
um góða gripi til verðlaunaveitinga fyrir afrek
í skíðaíþróttinni.
Mörg börn hlutu verðlaun fyrir góða námsár-
angra og prúðmennsku. Verðlaun þessi eru gef-
in af: Kvöldvökuútgáfunni, Eiríkssjóði og Afeng-
isvarnarnefnd Akureyrar. Kann skólinn gefend-
um beztu þakkir fyrir.
I sumar verður haldið áfram lagfæringum á
lóð skólans og beytingum á kennslustofum. A ár-
inu hefur hann eignazt mörg ný kennslutæki og
áhöld, ásamt all miklu af bókum. Nú síðast var
fest kaup á barnabókasafni stúkunnar, hefur það
verið flutt í skólann og verður senn raðað í
spj aldskrá.
Skólastarfið er orðið mjög fjölþætt. Náms-
greinar um 24, en eðlisfræði 'bættist í hóp þeirra
á þessum vetri. Var hún kennd í 5. bekkjum.
Næsta vetur er áætlað að taka upp kennslu í líf-
fræði og jafnframt færa dönskukennsluna niður
í 5. bekki.
Erlendis eru gerðar tilraunir með breytingu á
kennsluháttum, sem nefndar hafa verið „skóli án
bekkjadeilda“. Ræddi skólastjóri nokkuð um
þessar tilraunir og kvað athyglisvert hversu vel
þær virtust gefast.
Að loknum skólaslitum var haldinn 100. kenn-
arafundur nýja Oddeyrarskólans. Skólastjóri er
Indriði Úlfsson.
40
HEIMILI OG SKÓLI