Heimili og skóli - 01.04.1971, Side 21
Islenzkir skólastjórar þingra I Woreg;i
Fyrir rúmu ári ákvað Skólastjórafélag
Islands að efna til móts (námskeiðs) í
Noregi. í bréfi til félagsmanna var þess get-
ið, að nokkur erlendur styrkur hefði feng-
izt til greiðslu dvalarkostnaðar.
Mótið skyldi standa í eina viku, fyrirles-
arar norskir, markmiðið að kynnast skóla-
málum í Noregi og framtíðaráætlunum í
menntamálum. Meðal gesta mótsins voru
Magnús Gíslason og frú, en Magnús starf-
aði sl. vetur sem kennari við nýjan lýðhá-
skóla í Gautaborg.
Um fimmtíu íslenzkir skólastjórar og
makar þeirra tóku þátt í þessari Noregsferð
og fóru utan í byrjun jún. Dvalið var á Tran-
berg, sem er mótsstaður norska kennarasam-
bandsins. Tranberg er gamalt herrasetur, er
stendur á hæð ofan við bæinn Gjövík í Guð-
brandsdal.
Móttökur Norðmanna og skipulagning
mótsins var með ágætum, og fyrirlesararnir
voru helztu framámenn skólamála þar í
landi. Var einróma álit íslenzku þátttakend-
anna, að ferðin hefði verið mjög lærdóms-
rík og ánægjuleg.
Ef íslenzki skólinn á að vera samkeppnis-
fær, verða þeir er honum stjórna að fylgjast
náið með breytingum erlendis. Þar er víða
framkvæmd margs konar tilraunakennsla,
Framhald á bls. 47.
HEIMILI OG SKÓLI
41