Heimili og skóli - 01.04.1971, Síða 22
Kynferðisfræðsla
í skólnm
Á LIÐNUM vetri var mörgum barnaskólum gefinn kostur á að kaupa
lítið kver, sem ber nafnið „Eg er að verða stór mamma“. Höfundur
þess er Jóna Yalg. Höskuldsdóttir hjúkrunarkonar. Sagði í meðfylgj-
andi bréfi, að það væri ætlað til kennslu 11—13 ára stúlkum enda
fræddi það um þroskabreytingar þeirra á þessum aldursárum.
í vetur hafa stúlkur, í nokkrum eldri deildum Oddeyrarskólans, sótt
tíma til hjúkrunarkvenna skólans, en þær hafa útskýrt efni kversins og
auka við það eftir þörfum.
Þar sem ég taldi að fræðsla þessi, væri ekki óviðkomandi foreldrum,
ef hún yrði almennt upp tekin, þá sneri ég mér til hjúkrunarkvennanna
og bað þær um að skýra frá tilhögun kennslunnar og viðbrögðum stúlkn-
anna varðandi þessa fræðslu. Hér á eftir fara svör þeirra:
„Tilhögun kennslunnar var sú, að hverri bekkjardeild var skipt í
2—3 hópa með 6—10 stúlkum. Hver hópur kom í 3 viðræðutíma. I
þeim fyrsta var skýrt frá þeim breytingum, sem verða á líkamsstarf-
semi konunnar og skapgerðarsveiflum, sem iðulega fylgja. I stórum
dráttum var, með myndum, sýnd bygging kynfæra kvenna, sagt frá hor-
mónabreytingum, sem valda egglosi og tíðablæðingum, frjóvgun og
frjóvgunartímabili.
I öðrum tíma var fjallað um þrifnað á tímabilinu og óþægindum,
sem geta fylgt tíðum.
Þriðji tíminn fór að mestu í rabb. Þá var þeim sagt, að hormóna-
breytingarnar á þessu aldursskeiði yllu oft feitri húð og hvimleiðum
42
HEIMILI OG SKÓLI