Heimili og skóli - 01.04.1971, Blaðsíða 23

Heimili og skóli - 01.04.1971, Blaðsíða 23
bólum (svokölluðum unglingabólum), einkum á andliti, bringu og herð- um. Var þeim kennt hvernig hægt væri að forðast þær, með þrifnaði og sérfræði. Þvo og baða sig oft og vel með góðri (sótthreinsandi) sápu og greiða hárið frá andlitinu. Rétt mataræði væri nauðsynlegt. Borða all- an algengan mat, en forðast alla fitu og sætindi. Einnig var þeim bent á, að í upphafi tímabilsins, þætti þeim lítt varið í stráka. Þeir stríddu þeim og þær væru viðkvæmar og uppstökkar. Síð- ar vaknaði áhugi þeirra á þeim og þá á annan hátt en fyrr. Viðbrögð stúlknanna voru mjög jákvæð og greinilegt hve margar voru fáfróðar og brennandi af fróðleiksfýsn. Að lokum viljum við taka eftirfarandi fram: Til þess að einstakling- ur þroskist að viti og vizku, þarf hann stöðugt að nema. Bæta við sig þekkingu, móta og beizla eigin orku til athafna. Hlutverk heimila og skóla er, að hjálpa ungu kynslóðinni á þessari braut. Kenna þeim m. a. að þekkja líkama sinn, heilbrigða lifnaðarhætti og auka félagsþroska þeirra. Þýðingarmeira hlutverk er tæplega til.“ Eg þakka hjúkrunarkounum svörin og vil um leið benda á, að með þessu litla kveri, er aðeins kominn vísir að því, sem hlýtur að koma. Sjálfsagt er að drengir fái kynferðisfræðslu, en til þess að svo megi verða er nauðsynlegt að hafa handhæga bók. Þá má einnig benda á, hvort ekki væri rétt, að bókin yrði samin handa báðum kynjum. Ekki teldi ég æskilegt að hún yrði mikil að vöxtum, því mér sýnist ástæðu- laust að leggja mikla áherzlu á fræðslu um þessi líffæri. En í þeim kennslubókum, sem nú eru notaðar í barna- og unglingaskólum, er nán- ast engin kynferðisfræðsla. Tel ég það ekki vansalaust, þar sem þjóð- félagið og almennir lifnaðarhættir borgarans eru fastmótaðir í afstöðu til sambands kynjanna og ætlast til lágmarks þekkingar einstaklinga á þessu sviði. I. ú. HEIMILI OG SKOLI 43

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.