Tækni - 01.06.1943, Page 10

Tækni - 01.06.1943, Page 10
Fjaðrandi og sveigjanleg tengsl. T. h. samsett tengslin. T. v. tengslishlutarnir. Krossinn í miðj- unni er úr fjaðrandi efni. (Renold). e. hálfkross-reimdrif. 1. Bein tenging. Þegar aflvél er tengd beint inn á ás vinnuvélar, er snúningshraði beggja jafn og snúningsátt beggja sú sama. a. Föst tenging. Slíka tengingu má nota til aflyfirfærslu á rafala, dælur, þjöppur og aðrar vélar, sem lítið viðnám veita í ræsingu. Til skýringar skal þess getið, að ræsiviðnámið má vera allt að 12%, ef vélin er tveggja strokka dieselvél 15% - — - þriggja — — 20% - — - fjögra — eða meir af venjulegu álagi við réttan snúnings- hraða hreyfilsins. Sé vinnuvélin rafall, er álagið ekki sett á hann, fyrr en aflvélin hefur náð fullum snúningshraða. Ef vinnuvélin er venjuleg, einföld mið- flóttaaflsdæla, þarf einungis að gæta þess að opna lokann á þrýstipípu dælunnar smátt og smátt, með vaxandi snúnings- hraða hreyfilsins. Öðru máli gegnir um margfaldar háþrýsti-miðflóttaaflsdælur. Sé um slíka vinnuvél að ræða, ber að leita Keðjunúning'stengsl. T. h. sést keðjan, sem spenn- ist út í tengiskálina og hólkinn í miðjunni og tengir. (Renold). 4 TÆKNI

x

Tækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.