Tækni


Tækni - 01.06.1943, Qupperneq 20

Tækni - 01.06.1943, Qupperneq 20
statorskrúfur hreyfilsins, eins og sýnt er á 3. mynd, mun frá kerfinu koma straum- ur, sem er 90° á undan spennunni. Þessi straumur mun vera óbreytilegur, en við að velja rétta stærð af rýmd (kapacitet). þéttanna er hægt að útrýma hinum watt- lausa „komposant“ við venjulegt álag, þannig að coscp = 1. Við lítið álag mun straumurinn koma á undan spennunni. Þéttar, sem eru notaðir á þennan hátt, eru mjög einfaldir og eru því notaðir mjög mikið. Það er einnig hægt að nota þétta í snúðrásina til að bæta fasviksstuðulinn, en sú aðferð er óhentug, þar sem bæði tíðni og spenna eru svo lág í snúðnum, að það mundi vera nauðsynlegt að nota mjög stóra þétta. b. Le Blanc’s fasastillir. Eins og áður er getið, er hægt að fá betri fasviksstuðul með því að tengja þétti í snúðrásina. En þar sem hér mun þurfa að nota stóra þétta, hefur verið fundin önnur betri aðferð, er nefnist Le Blanc’s fasastillir. Le Blanc’s fasastillir fyrir þrífasa span- hreyfil samanstendur af venjulegum rak- straumsvöfum með 3 burstum (eða 3 burstum pr. pólpar, ef fleiri en 2 pólar eru notaðir), sem er komið fyrir 120 raf- magnsgráðum hvor frá öðrum á straum- vendinum. Þessir burstar eru svo tengdir við snertihringina (kontaktringene) á snúð. Verkanir fasastillisins er hægt að bæta með því að láta innfærða rafkraftinn í snúð spanhreyfilsins fá hornvik í hlutfalli við snúðstrauminn, sem er mismunandi frá 90°. Þessu er hægt að ná með því að koma fyrir í stator fasastillisins þrífasa segulmögnunarvöfum og tengja þau í röð eða samhliða burstunum. Straumarnir í þessu vafi mynda hverfisvið (drejefelt), sem snýst af sama hraða og sviðið, sem myndast af straumunum í snúðvafinu. Þessi tvö svið munu því í sameiningu mynda samanlagt svið. Á 4. mynd er sýnd raðartenging af segulvöfunum. Með því að nota þessa teng- ingu mun aðeins lítill snúðstraumur vera við lítið álag og þess vegna einnig lítill kraftlínustraumur og þar af leiðandi lítill rafkraftur í snúðnum. Þessi tenging hef- ur því litlar verkanir, þegar álagið er lítið. Á 5. mynd er sýnd samhliða tenging af segulvöfum (Scherbíus fasastillir). Kraft- línustraumurinn d>, sem er framleiddur af statorvöfunum, er í beinu hlutfalli við þá 14 T Æ K N I

x

Tækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.