Tækni - 01.06.1943, Side 22

Tækni - 01.06.1943, Side 22
Osmos-hreyfillinn er sameining af venju- legum spanhreyfli og tíðnibreyti af Le Blancs-gerð. Forvaf (primærvikling) er á þessum hreyfli, undið á snúð og eftirvaf (sekundærvikling) á stator. Á snúðnum er aukavafi komið fyrir í nótunum undir for- vafinu. Þetta aukavaf er tengt við straum- vendi og svarar til rakstraumsvafsins á fasastillinum. Á straumvendi eru 3 bursta- pör, sem tengd eru við eftirvafið á stator, svo að sá rafkraftur, sem myndast í rak- straumsvafinu, fer gegnum straumvendi inn í eftirvafið og getur þess vegna notast til að endurbæta fasviksstuðulinn. Segulmögnunarstraumurinn í forvafinu (snúð) myndar hverfisvið, sem snýst með samfasa hraða í hlutfalli við snúðvöfin. Þetta svið spanar upp í þeim stöðugan rafkraft, sem verkar á burstana. Snúðvöf- in snúast hér um bil með samfasa hraða, svo að sviðið snýst með slipphraðanum n, n2 í hlutfalli við burstana. Fasviks- stuðullinn verður miklum mun betri við lítið álag, en hann minnkar, ef álagið eykst. Venjulega eru burstarnir þannig, að cos,9? = 1 við venjulegt álag. III. Endurbætur á bæði hraða og fasviksstuðli. Venjulega eru eftirtaldar aðferðir not- aðar: a. Kramer-kerfið. b. Schrage-hreyfillinn. ci. Kramer-kerfið. Snertihringirnir á aðalhreyfli (span- hreyflinum) eru tengdir snertihringjun- um á einsnúðsriðlinum (etankeromformer) á 7. mynd. Frá rakstraumshlið einsnúðs- riðilsins fer straumur til rakstraumshreyf- ils með utanaðkomandi segulmögnun (fremmedmagnetisering), sem er frá rak- straumskerfinu neðst á myndinni. Þessi hreyfill er á sama ás og aðalhreyfillinn, svo að sveifarafl (drejningsmoment) hans bætist við spanhreyfilinn. Breyting á sviði rakstraumshreyfilsins myndar breytingu á mótspennunni í hreyflinum og þar með tilsvarandi breytingu á rafkraftinum við rakstraumsburstana í einsnúðsriðlinum. Þar sem hlutfallið milli rakstraums- og rið- straumsspennu í einsnúðsriðlinum er óbreytilegt, mun hækkun rafkraftsins á rakstraumshliðinni valda tilsvarandi hækkun spennunnar á riðstraumshliðinni. Aukning spennunnar við snertihringina er því hið sama og hækkun rafkraftsins í snúðrás spanhreyfilsins. En eina leiðin til, að þetta sé hægt, er að auka slippið. Með því að auka svið rakstraumshreyfils- ins eykst slipp spanhreyfilsins. Slipporkan, sem myndast við snerti- hringina, fer yfir í einsnúðsriðilinn og þaðan til rakstraumshreyfilsins. Ef rak- straumshreyfillinn og spanhreyfillinn eru á sama ás, bætist þessi orka við álagið, svo að sú orka, sem vélasamstæðan skilar, er óbreytileg og er ekkert undir hraðan- 1« T Æ K N I

x

Tækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.