Tækni - 01.06.1943, Page 25

Tækni - 01.06.1943, Page 25
Næst komst hreyfing á rafveitumálið sumarið 1941. Um miðjan júlí var gengið frá framhaldssamningi um bygginguna við sömu aðilja og áður. Hefði verð raf- veitunnar, eftir þáverandi verðlagi, orðið um 330.000 krónur. Dráttur varð þó á af- greiðslu sýsluábyrgðarinnar, svo að end- anlega varð ekki gengið frá samningum fyrr en í ágústlok (1941). Yar samið við verksmiðjur í Englandi um smíði á vélum og virkjum rafveitunnar. Annað efni var pantað frá Ameríku. Kom það haustið og veturinn 1941. Smíði vélanna og afgreiðsla tók miklu lengri tíma en í fyrstu var gert ráð fyrir. Stuttu eftir, að samið var um smíðina, gengu í gildi í Englandi strangari reglur en verið höfðu um útflutning þaðan. Þó tókst að fá útflutningsleyfi að nýju, en sumarið 1942, um það bil er vélarnar voru fullsmíðaðar, var enn hert á útflutnings- reglunum, svo að heita mátti, að um fullt útflutningsbann á vélum væri að ræða. Þó tókst að fá túrbínuna fljótlega, eftir að smíði hennar var lokið, en rafall, spennar o. fl. fékkst loks fyrir milligöngu brezka sendiráðsins hér nokkrum mánuðum eftir, að smíði þeirra var lokið, í nóvembermán- uði s.l. Ýmis mæli- og öryggistæki eru þó enn ókomin, er þessar línur eru ritaðar, þótt þau séu löngu tilbúin til afgreiðslu. Kostnaðurinn við rafveituna, orkuver, há- spennulínu og innanbæjarkerfi verður alls um 420.000 kr. eða um 1680 kr. á virkjað hestafl. Þar af er kostnaðurinn við sjálft orkuverið um 340.000 kr. eða um 1360 kr. á virkjað hestafl. Vatnsmagn og afl. Garðsá rennur eftir samnefndum dal, er gengur suðvestur í fjöllin milli Ólafsfjarð- ar og Fljóta. Vatnasvæði árinnar er um 20 km2 og nær upp í 800—900 metra hæð y. s. TÆKNI Vatnsrennsli árinnar var fyrst mælt ár- ið 1930 og hefur verið mælt síðan af og til, þegar rennsli hefur verið lítið. Virðist skv. mælingunum sem minnsta rennsli síðan 1930 hafi orðið 160—170 ltr. á sek., sam- svarandi um 8—8,5 ltr. rennsli af hverj- um km- vatnasvæðisins. Er það svipað og rennsli Fljótaár, en hún hefur verið mæld stöðugt síðan 1929, enda eigi báðar árnar upptök í sama fjallgarðinum. Flest árin, síðan mælingarnar hófust, hefur þó minnsta rennsli Garðsár verið töluvert yfir 170 ltr./sek., og þau árin, sem það varð svo lítið, hefur það aðeins staðið í örfáa daga nema árið 1937. Þá flutti áin aðeins um 170 ltr./sek. mikinn hluta marz- mánaðar. Virkjuð fallhæð árinnar er um 73 metr- ar og afl túrbínu við 170 Itr./sek. rennsli um 130 hestöfl. Nægileg dægurmiðlun á vatninu fæst í lóni, sem myndast ofan við stíflu virkjun- arinnar. Er því við 170 Itr./sek. rennsli hægt að nýta 250 hestöfl í um 12þ^ klst. á sólarhring, en það samsvarar um 4560 klst. árlegum nýtingartíma. Virkjunin. Áin er stífluð, þar sem hún rennur út úr aðaldalnum, stutt ofan við bæinn Garð. Stíflan er úr steinsteypu, nema austur- endinn er jarðstífla. Hæð steinstíflunnar í árfarveginum er rúml. 4 metrar. Lengd steinstíflu um 20 m., en jarðstíflu um 38 m. Þrýstivatnspípan er um 620 metrar á lengd. Efst eru 500 metrar af 50 cm. víðri trépípu, en neðst 45 cm. víð járnpípa. Vatnstúrbínan er þrýstingstúrbína 250 hestöfl. Hraði hennar er 600 snúningar á mín. Hún er af túrbínugerð („turgo im- pulse“-hjól), sem er eins konar milliliður á milli venjulegra pelton- og francis- túrbína. Svo sem kunnugt er, eru vissir staðhættir þannig, að bæði háfalls- og lág- 19

x

Tækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tækni
https://timarit.is/publication/1886

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.