Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Blaðsíða 4
4 | | 19. apríl 2023 Áfram ÍBV, alltaf alls staðar E Y J A M A Ð U R I N N F E L I X Ö R N F R I Ð R I K S S O N Knattspyrnusumarið er loksins farið af stað, karlalið ÍBV sótti Val heim í fyrsta leik tímabils- ins og komust þeir yfir 1-0 með glæsilegu marki frá Felixi Erni Friðrikssyni en því miður tapaðist leikurinn 2-1. Felix Örn er Eyjamaður vikunnar. Fullt nafn: Felix Örn Friðriksson Fjölskylda: Pabbi heitir Friðrik Örn og mamma Þórey Svava, litli bróðir heitir Alexander Örn. Svo er það litli strákurinn minn Kristian Örn og kærastan mín Petrúnella Aðalheiður. Hefur þú búið annarsstaðar en í Eyjum: Bjó í nokkra mánuði í Vejle, Danmörku. Mottó: Koma fram við fólk eins og þú vilt að það komi fram við þig. Síðasta hámhorfið: Var að klára horfa á Night agent, geggjaðir þættir á Netflix, mæli með. Uppáhalds hlaðvarp: Voða lélegur að hlusta á hlaðvörp, en hlusta stundum á Dr. football. Aðaláhugamál: Fótbolti. Eitthvað sem þú gerir á hverjum degi sem þú gætir ekki verið án: Þarf að fá mitt koffín þegar ég vakna og klára búa um rúmið mitt og Kristians áður en við förum út. Hvað óttast þú mest: Það skulu vera köngulær og litlar flugvélar. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Er alæta á tónlist og margir artistar koma mér í gott skap. Hvaða ráð myndir þú gefa 16 ára þér sem veganesti inn í lífið: Lifðu bara einn dag í einu, vertu þakklátur og fjölskyldan er það mikilvægasta sem þú átt. Hvað er velgengni fyrir þér: Velgengni getur verið margt fyrir mér, varðandi fótbolta er það að halda aga og ná markmiðum. Velgengni utan fótbolta er að láta öllum í kringum mig líða vel, láta mér líða vel og brosa. Og margt fleira. Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Byrjaði að æfa fótbolta þegar góður vinur minn og minnar fjölskyldu, Kiddi Gogga, kom og talaði mig til að byrja æfa fótbolta, örugglega um 6 ára þá. Þakka honum fyrir í dag ásamt mömmu og pabba að sjálfsögðu að þurfa koma og horfa á æfingar hjá mér fyrsta árið út af því að ég var eitthvað óöruggur einn. Hvernig lýst þér á tímabilið: Mér líst mjög vel á það, mjög sterkur hópur og okkur eru allir vegir færir. Hver eru markmiðinn fyrir tímabilið: Markmiðin fyrir mig er að hjálpa liðinu eins og ég get og gefa mig allan í þetta. Markmiðið hjá okkur öllum er að gera betur en í fyrra. Þú fórst að láni til Danmerkur, hvernig var sú upplifun: Þetta var góð reynsla að fara þangað og kynnast því hvernig er að vera langt frá fjölskyldunni og spila fótbolta á hærra leveli en er hérna á Íslandi. Hefði verið til í meiri spiltíma og fleiri tækifæri. En alltaf gott að koma heim og spila í heimaklúbbnum sínum. Eitthvað að lokum: Þökkum fyrir stuðninginn til okkar, hann er okkur mikils virði og gefur okkur mikið. Höldum áfram og áfram IBV, alltaf alls staðar. Felix Örn Friðriksson. Sumir kórar eiga sér mörg líf. Það gildir um Dómkórinn í Reykjavík. Auk kórsins sem syngur reglulega í Dómkirkjunni í Reykjavík starfar annar kór sem kallar sig Sönghópinn Martein og samanstendur af fyrrverandi (og nokkrum núverandi) kórfélögum Dómkórsins. Hann kennir sig við Martein H. Friðriksson sem kom upphaflega til Vestmannaeyja árið 1965 til að gerast organisti við Landakirkju og kórstjóri. Nú er þessi kór væntanlegur í heimsókn til Eyja og hyggst halda tónleika í Akóges laugardaginn 29. apríl kl. 20. Marteinn starfaði í Eyjum í sex ár og varð eins og allir sem þangað koma hrifinn af Eyjalög- um Oddgeirs, Ása í Bæ og fleiri. Hann tók sig því til og útsetti þau fyrir kór. Nokkur þeirra verða sungin á tónleikunum. Annar tónlistarmaður sem hafði töluverð áhrif á músíklíf Vestmannaeyja verður einnig með kórnum í för. Hann söng reyndar með Dómkórnum sem og sonur hans og sonarsonur. Það er Sigurður Rúnar Jónsson, betur þekktur sem Diddi fiðla, sá sem kippti með sér frosnu lambalæri þegar hann þurfti að flýja undan gosinu fyrir hálfri öld. Hann hefur bæði samið og útsett lög, meðal annars úr söngleiknum Hárinu, og nokkur þeirra verða flutt á þessum tónleikum. Rúsínan í pylsuenda þessara tónleika verður svo Dómkórsungi sem nefnist Una Torfa. Í kórnum syngja báðir foreldrar Unu og restin er miklir aðdáendur hennar. Þegar ljóst varð að hún yrði í Eyj- um þessa sömu helgi og kórinn var ákveðið að kórinn syngi með henni nokkur af lögum hennar en hún syngi forsöng, að sjálfsögðu. Eins og margir kórar er Söng- hópurinn Marteinn um leið ferðafélag, sem að þessu sinni er í árlegri vorferð sinni innanlands. Í fyrra vorum við á fastalandinu, nánar tiltekið í Skógum undir Eyjafjöllum og horfðum dreymn- um augum til Eyja. Svo tókum við reyndar einnig þátt í kórahátíð á Tenerife, sem sumir kalla syðstu eyju Vestmannayjaklasans, og gerðum það bara gott. Við hlökk- um til að heimsækja og syngja fyrir Eyjamenn og bjóðum alla velkomna í Akóges. Sönghópurinn Marteinn í Akóges Sungið að Skógum, dreymt um Eyjar. FRÉTTATILKYNNING

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.