Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Síða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2023, Síða 18
18 | | 19. apríl 2023 Agnes Guðjónsdóttir og Bjarki Már Vilhjálmsson eignuðust dreng þann 10. febrúar 2023. Drengur- inn hefur fengið nafnið Bergsteinn Máni Bjarkason. Bergsteinn Máni er fyrsta barn þeirra saman en fyrir á Bjarki tvo drengi. Fæðingarsaga þeirra Agnesar og Bjarka hefur vakið athygli þar sem segja má að hún hafi ekki beint verið með hefðbundnum hætti. Agnes ákvað að drífa sig til Reykjavíkur mánudaginn 6. febrú- ar þar sem Herjólfur hafði ekki siglt einhverja daga á undan og spáin fyrir næstu daga til siglinga var slæm. Settur dagur var 23. febrúar og því rúmlega tvær vikur í settan dag. Bjarki varð eftir í Eyjum þar sem hann var að vinna og ætlaði að nýta vikuna í gæða- stundir með eldri strákunum áður en nýr bróðir bættist í hópinn. „Ég treysti mér ekki til að ferðast ein og keyra þannig ég dreif mig í bæinn á mánudeginum“, segir Agnes. Á facetime í fæðingunni Agnes fer af stað aðfaranótt föstu- dagsins 10. febrúar. Hún lætur Bjarka vita um tvö leytið að það sé eitthvað að gerast og Bjarki ætlaði að taka fimm ferðina með Herjólfi þann dag. Það var mikið áfall fyrir þau bæði að komast að því að Herjólfur hafði fellt niður ferðina og ekkert var flogið þenn- an dag vegna veðurs. „Ef Herjólf- ur hefði farið klukkan fimm, þá hefði hann náð fæðingunni“, segir Agnes. Það því var engin leið fyrir Bjarka að komast í bæinn. Daginn eftir sigldi Herjólfur ekkert og því komst Bjarki ekki til Reykjavíkur fyrr en á sunnudeginum, tveimur dögum eftir að Bergsteinn Máni kom í heiminn. „Ég reyndi að redda mér fari yfir en það var engin tilbúinn í það í þessu veðri“, segir Bjarki. Móðir Agnesar, systir og systur- sonur voru henni til stuðnings í gegnum allt saman. „Það var smá sárabót“. Bjarki var á facetime allan tímann, „Maður sá hann aldrei og fann ekki fyrir hon- um“. En þrátt fyrir allt var Bjarki fyrstur til þess að sjá Bergstein Mána þegar hann kom í heiminn, „Síðan þegar ég var komin með Bergstein í fangið sá ég Bjarka í símanum, það var falleg stund“ segir Agnes. Þetta voru að sjálfsögðu von- brigði fyrir þau. „Við ákváðum bara að svekkja okkur aðeins á þessu og svo er þetta bara búið, þetta er engum að kenna,“ segja þau. Fjölskyldan kom heim til Eyja þann 16. febrúar. Segja má að heimferðin hafi verið í takt við allt sem á undan gekk. Fjölskyldan átti pantað í Herjólf kl. 20:45. Rétt fyrir kl. 16:00 gaf Herjólfur út að aðeins yrði siglt ein ferð þennan dag kl. 18.15. Höfðu þau því um tvo tíma til að pakka og koma sér til Landeyjahafnar. „Þetta er háanna tími. Ég var standandi að gefa honum, ásamt því að koma öllu út í bíl í hálku og slyddu“, segir Agnes. Best að geta átt heima Skurðstofunni í Vestmanna- eyjum var lokað árið 2013. Sú ákvörðunartaka hefur haft í för með sér mikla afturför á fæðingarþjónustunni. Í dag eru tvær ljósmæður starfandi í Eyjum, þær Gréta Hrund Grétarsdóttir og Drífa Björnsdóttir. Mikið er lagt upp úr því að eyjan sé aldrei án ljósmóður. Það er ekki hægt að skipuleggja hvenær fæðing eða bráðatilfelli koma upp. Nýbúið er að taka fæðingarstofuna í gegn og er hún glæsileg. Konur í fæðingu geta fengið margskonar hjálp til að takast á við samdrættina en ekki er hægt að fá þjónustu svæf- ingar- eða fæðingarlæknis. Samkvæmt Grétu voru sjö fæðingar í Eyjum árin 2021 og 2022, auk einnar heimafæðingar. „Enginn hefur fætt hér í ár og hefur veðrið þar áhrif. Tvær konur sem voru með það í huga að fæða hér á þessu ári hafa farið upp á land vegna veðurs. Veðrið skiptir miklu máli þar sem foreldrum verður að líða vel með þá ákvörðun að fæða í Vestmanna- eyjum. Þeim konum sem stendur til boða að fæða hérna þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði sem eru ákvörðuð af Landlæknisemb- ættinu“, segir Gréta. Í janúar 2021 voru sett á ný lög þar sem konur sem þurfa að dvelja fjarri heimili sínu til að nýta nauðsynlega fæðingarþjón- ustu geta sótt um dvalarstyrk frá 38. viku meðgöngu og þar til þær leggjast inn á fæðingarstofnun. Agnes fór til Reykjavíkur fimm dögum fyrir 38. viku og á þar af leiðandi ekki rétt á dvalarstyrk. Full meðgöngulengd er 37 vikur svo vonandi verður það og aðrir annmarkar lagaðir þegar dvalar- styrkurinn verður skoðaður næst. „Það væri auðvitað best að geta átt heima hjá sér,“ segir Agnes að lokum. Pabbinn á facetime í fæðingunni Missti af fæðingunni Best að geta átt heima Bergsteinn Máni Bjarkason. Agnes og Bjarki Már. ” Við ákváðum bara að svekkja okkur aðeins á þessu og svo er þetta bara búið, þetta er engum að kenna. DÍANA ÓLAFSDÓTTIR diana@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.