Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 4
4 Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
Tvær aðalvélar auka öryggi
Upphaflega stóð til að leggja af ferjusiglingar á
Breiðafirði við lok samnings við Sæferðir vorið 2023
en ákveðið var breyta þeirri ákvörðun og halda
áfram siglingum, meðal annars í ljósi þess að
miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi á
sunnanverðum Vestfjörðum með uppbyggingu fiskeldis
og aukinna umsvifa í ferðaþjónustu við Breiðafjörð.
Einnig er ferjan mikilvæg fyrir íbúa Flateyjar þar
sem skipið flytur nauðsynjar til eyjarinnar og er
aðalferðamáti ferðafólks sem vill heimsækja Flatey og
dvelja þar til skemmri eða lengri tíma.
Strax árið 2021 var farið að skoða hvort hægt væri að
finna annað skip sem uppfyllti þær kröfur sem settar
eru fyrir ferjusiglingar á Breiðafirði. Gerð var krafa um
að skipið væri búið tveimur aðalvélum og hefði haffærni
fyrir C svæði en siglingaleiðin um Breiðafjörð flokkast
sem C svæði. Afar fáar ferjur standa til boða sem geta
siglt á C hafsvæði, eru með tvær vélar og geta jafnframt
notast við núverandi hafnarmannvirki. Það var því
heppilegt að norska ferjan Röst stóð til boða.
Vegagerðin keypti ferjuna Röst af Torghatten Nord
í Noregi en hún sigldi í Norður-Noregi á ferjuleiðinni
Svolvær-Skrova-Skutvik. Skrifað var undir
kaupsamning 15. september 2023 en kaupverð
ferjunnar var 3,5 milljónir Evra.
Stærsti kostur nýju ferjunnar er að hún er með tvö
aðskilin framdrifskerfi, þ.e. hún er útbúin tveimur
aðalvélum og tveim skrúfum sem stóreykur öryggi
farþega. Einnig er hún með öfluga veltiugga sem gerir
siglinguna þægilegri og farþegarými er allt á sama
dekki. Þá er hún 12 árum yngri en gamli Baldur og
aðstaða fyrir farþega er öll hin þægilegasta.
Nýi Baldur tekur 250 farþega og rúmar fimm stóra
flutningabíla.
Til að ferjan gæti þjónað siglingum á Breiðafirði þurfti
að ráðast í nokkrar breytingar. Skipið fór í slipp við
komuna til landsins hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar
ehf. í Hafnarfirði sem átti lægsta boð í breytingarnar.
Þær fólu m.a. í sér að koma fyrir nýjum þilfarskrana,
landfestuvindum, færa til lyftibjörgunarbáta, útbúa
geymslusvæði á þilfari og mála skipið að utan. Einnig
þurfti að vinna að almennu viðhaldi véla og búnaðar.
↑
Lions-klúbburinn Harpa í Stykkishólmi sá
um dýrindis veitingar við athöfnina.
↑
Aðstaða fyrir farþega er til fyrirmyndar.
↓
Baldur var einnig til sýnis í Brjánslæk á
sunnudeginum 19. nóvember. Um 40 manns
mættu til að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar.