Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 8

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. Tæplega tólf hundruð brýr á Íslandi heyra undir Vegagerðina. Þar af eru 654 einbreiðar brýr og 532 tvíbreiðar brýr, eða samtals um 31 kílómetri af brúm. Meðalaldur brúa er 45 ár en þriðjungur þeirra er orðinn meira en 60 ára gamall. Árið 2019 setti Vegagerðin af stað átak í vegriðsmálum þar sem gerð var öryggisúttekt á 900 brúm. Helstu áhættuþættir voru metnir en sérstök áhersla var lögð á að taka út ástand og öryggi vegriða til að meta hvar brýnast væri að skipta út eldri vegriðum fyrir ný og sterkbyggðari vegrið sem uppfylla gildandi öryggisstaðla. Úttektin var gerð á brúm sem eru staðsettar á stofn- og tengivegum um land allt, þar með taldar eru allar brýr á Hringveginum og brýr á umferðarþyngstu vegum landsins, en margar þeirra eru á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess var gerð úttekt á brúm þar sem afleiðingar af slysum geta verið mjög alvarlegar. Þar er um að ræða brýr sem eru yfir umferðarþungum götum, brýr með mikla fallhæð og einnig þar sem farið er yfir sjó. Umferðaröryggi vegfarenda er haft að leiðarljósi í þessu átaki. Vegagerðin setti af stað átak í vegriðsmálum árið 2019. Áformað er að skipta um kílómetra af vegriði árlega. Ný vegrið komin á 12 brýr af 20 í vegriðsátaki Samhliða úttektinni var verkefnum forgangsraðað og gerð aðgerðaráætlun um að skipta út vegriðum á tuttugu brúm fyrir árslok 2025. Verkefnið snýst í grunninn um að fjarlægja eldri vegrið sem ekki standast nútíma öryggiskröfur, farga þeim og setja upp ný vegrið, sem eru hærri og sterkbyggðari og uppfylla gildandi öryggisstaðla. Jafnframt er nú unnið að fimm ára áætlun um útskipti á vegriðum á fleiri brúm og vonast er til að Vegagerðin fái fjármagn til að það verkefni verði að veruleika. Stefnt er að því að skipta um vegrið á brúm sem samsvara um heilum kílómetra á ári. ↑ Gerð var úttekt á brúm á umferðarþyngstu vegum landsins. Sett var nýtt vegrið við Hamraborg. → Sett voru ný vegrið á brú á Vífilsstaðavegi og Kauptúni yfir Reykjanesbraut fyrr á árinu, til að skilja að akandi og gangandi vegfarendur.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.