Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 10
10 Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
Borinn er af gerðinni GM100 og framleiddur
af Geomachine í Finnlandi sem sérhæfir sig í
framleiðslu gæða jarðtækniborum. Nýi borinn
bætist við tækjabúnað stoðdeildar mannvirkjasviðs
Vegagerðarinnar sem hefur hingað til notast við mun
minni jarðtæknibor sem kominn er til ára sinna. Sá
verður þó áfram í notkun í ýmsum verkefnum.
Vegagerðin fékk nýja borinn afhentan í lok september.
Starfsfólk Vegagerðarinnar fékk kennslu á borinn frá
tveimur starfsmönnum Geomachine sem dvöldu hér í
eina viku. „Fyrsta daginn fengu vélvirkjar okkar kennslu
á borinn til að geta sinnt viðhaldi á honum. Næstu
daga fengum við þjálfun í stjórnun borsins í Skálafelli,
en þar var verið að gera rannsóknir vegna hönnunar á
nýjum vegi upp að skíðasvæðinu,“ segir Sverrir Örvar
Sverrisson, starfsmaður stoðdeildar Vegagerðarinnar.
Vel gekk að læra á borinn en í Skálafelli voru prófaðar
allar þær boraðferðir sem borinn býður upp á.
Nýr og stærri jarðtækni-
bor tekinn í notkun
Vegagerðin hefur fest kaup á nýjum jarðtæknibor
frá Geomachine í Finnlandi. Borinn er afar
tæknilegur og töluvert öflugri en fyrirrennari
hans. Hann verður notaður til ýmissa rannsókna
sem gagnast við hönnun vega.
Nýi borinn er mun öflugri en sá eldri og getur borað
dýpra. „Borborðið í bornum er tvöfalt og því er hann
í raun eins og tveir borar í einum, það er að segja að
hann getur framkvæmt tvær boraðferðir í einu,“ lýsir
Sverrir en meðal annars getur borinn framkvæmt
heildarborun ásamt snúnings- og þrýstiborun. Sverrir
segir þörf á bergborunum hafa aukist töluvert og nýi
borinn getur m.a. tekið kjarnasýni úr klöppum á mun
auðveldari hátt en sá eldri, en meta má berggæði með
rannsóknum á borkjörnum. Einnig má gera svokallaðar
CPT prófanir sem meta eigindi í jarðvegi með nýja
bornum.
↓
Borinn er útbúinn ýmsum
tækninýjungum og er
nánast alfarið stjórnað með
fjarstýringu.
→
Jarðtæknibíll og nýi jarðtækniborinn
við rannsóknir í Skálafelli.
↘
Starfsfólk stoðdeildar Vegagerðarinnar fékk kennslu
á nýja borinn í Skálafelli þar sem verið er að gera
rannsóknir vegna nýs vegar upp að skíðasvæðinu.