Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 25
Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
25
Blönduós
Laxárvík
Laxárdalur
Brunnárdalur
Hallárdalur
Skagaströnd
Húnafjörður
Nýr Þverárfjallsvegur (73)
Nýr Skagastrandarvegur (74) Ný brú yfir
Laxá í Refasveit
©Loftmyndir
Mikil aukning þungaumferðar
Aðdraganda þessa verkefnis má meðal annars rekja
til þess að sá hluti Skagastrandarvegar sem liggur
frá Hringvegi að Laxá var kominn til ára sinna og með
lítið burðarþol, hæðar og planlegu var ábótavant fyrir
mikla umferð ásamt því að á honum eru á annan
tug blindhæða. Ekki var möguleiki að endurbyggja
veginn á sama stað þar sem gamli vegurinn liggur um
vatnsverndarsvæði Blönduósbæjar.
Einnig var komið að nauðsynlegri endurnýjun
brúarinnar yfir Laxá í Refasveit því þó gamla brúin sé
veglegt mannvirki en hún er einbreið og aðkoman að
henni með takmarkaðri vegsýn.
Neðribyggðarvegur (741), sem nú verður aflagður, var
lítið sem ekkert uppbyggður. Hins vegar var á honum
töluverð þungaumferð vegna sorpurðunar í Stekkjarvík.
Umferð um þetta svæði hefur aukist töluvert á
undanförnum árum. Um aldamótin var umferðin
501 bíll á sólarhring yfir sumartímann á gamla
Skagastrandarveginum. Á síðasta ári var umferðin
komin upp í tæplega 1100 bíla á sólarhring yfir
sumartímann. Því hefur orðið tvöföldun á fjölda bíla
frá aldamótum. Þá hefur orðið töluverð aukning
þungaumferðar vegna sorpurðunar og fiskflutninga,
sér í lagi síðan Þverárfjallsvegurinn yfir til Sauðárkróks
var opnaður fyrir um tuttugu árum. Það hefur aukið
álag á vegi sem ekki voru hannaðir fyrir slíka umferð.
Ný vegnúmer
Verkið var boðið út sumarið 2021 og tilboð opnuð 17.
ágúst. Þrjú tilboð bárust og var samið við Skagfirska
verktaka sem áttu lægsta tilboð upp tæplega
1,5 milljarð kr. eða 108% af kostnaðaráætlun.
Heildarkostnaður var áætlaður um 2,2 milljarðar
fyrir utan verðbætur. Að Skagfirskum verktökum
standa þrjú skagfirsk verktakafyrirtæki, Steypustöð
Skagafjarðar, Víðimelsbræður og Norðurtak.
Vegnúmer breytast við þessar framkvæmdir. Nýi langi
stofnvegurinn (8,5 km) verður hluti af Þverárfjallsvegi
með nýju vegnúmeri (73). Nýi kaflinn með nýrri brú yfir
Laxá verður þá fyrsti hluti Skagastrandarvegar (74).
Gamli Skagastrandarvegurinn frá Hringvegi að Laxá
mun þá fá heitið Refasveitarvegur en auk þess verður
lagður af einn héraðsvegur, Neðribyggðarvegur (741).
Verkið gekk samkvæmt áætlun en verklok voru áætluð
í nóvember á þessu ári. Umferð var hleypt á nýja veginn
í október síðastliðnum og vegurinn opnaður formlega
þann 6. nóvember.
↑
Kortið sýnir legu hinna nýju vega.
↖
Skæraverðir voru þau Heiða Bjarndís og Aron
Logi. Heiðursfólkið við hlið þeirra eru Stefán
Öxndal Reynisson og Sóley Jónasdóttir