Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 25

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Qupperneq 25
Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. 25 Blönduós Laxárvík Laxárdalur Brunnárdalur Hallárdalur Skagaströnd Húnafjörður Nýr Þverárfjallsvegur (73) Nýr Skagastrandarvegur (74) Ný brú yfir Laxá í Refasveit ©Loftmyndir Mikil aukning þungaumferðar Aðdraganda þessa verkefnis má meðal annars rekja til þess að sá hluti Skagastrandarvegar sem liggur frá Hringvegi að Laxá var kominn til ára sinna og með lítið burðarþol, hæðar og planlegu var ábótavant fyrir mikla umferð ásamt því að á honum eru á annan tug blindhæða. Ekki var möguleiki að endurbyggja veginn á sama stað þar sem gamli vegurinn liggur um vatnsverndarsvæði Blönduósbæjar. Einnig var komið að nauðsynlegri endurnýjun brúarinnar yfir Laxá í Refasveit því þó gamla brúin sé veglegt mannvirki en hún er einbreið og aðkoman að henni með takmarkaðri vegsýn. Neðribyggðarvegur (741), sem nú verður aflagður, var lítið sem ekkert uppbyggður. Hins vegar var á honum töluverð þungaumferð vegna sorpurðunar í Stekkjarvík. Umferð um þetta svæði hefur aukist töluvert á undanförnum árum. Um aldamótin var umferðin 501 bíll á sólarhring yfir sumartímann á gamla Skagastrandarveginum. Á síðasta ári var umferðin komin upp í tæplega 1100 bíla á sólarhring yfir sumartímann. Því hefur orðið tvöföldun á fjölda bíla frá aldamótum. Þá hefur orðið töluverð aukning þungaumferðar vegna sorpurðunar og fiskflutninga, sér í lagi síðan Þverárfjallsvegurinn yfir til Sauðárkróks var opnaður fyrir um tuttugu árum. Það hefur aukið álag á vegi sem ekki voru hannaðir fyrir slíka umferð. Ný vegnúmer Verkið var boðið út sumarið 2021 og tilboð opnuð 17. ágúst. Þrjú tilboð bárust og var samið við Skagfirska verktaka sem áttu lægsta tilboð upp tæplega 1,5 milljarð kr. eða 108% af kostnaðaráætlun. Heildarkostnaður var áætlaður um 2,2 milljarðar fyrir utan verðbætur. Að Skagfirskum verktökum standa þrjú skagfirsk verktakafyrirtæki, Steypustöð Skagafjarðar, Víðimelsbræður og Norðurtak. Vegnúmer breytast við þessar framkvæmdir. Nýi langi stofnvegurinn (8,5 km) verður hluti af Þverárfjallsvegi með nýju vegnúmeri (73). Nýi kaflinn með nýrri brú yfir Laxá verður þá fyrsti hluti Skagastrandarvegar (74). Gamli Skagastrandarvegurinn frá Hringvegi að Laxá mun þá fá heitið Refasveitarvegur en auk þess verður lagður af einn héraðsvegur, Neðribyggðarvegur (741). Verkið gekk samkvæmt áætlun en verklok voru áætluð í nóvember á þessu ári. Umferð var hleypt á nýja veginn í október síðastliðnum og vegurinn opnaður formlega þann 6. nóvember. ↑ Kortið sýnir legu hinna nýju vega. ↖ Skæraverðir voru þau Heiða Bjarndís og Aron Logi. Heiðursfólkið við hlið þeirra eru Stefán Öxndal Reynisson og Sóley Jónasdóttir

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.