Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 9

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 9
Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. 9 Ný vegrið á tólf brýr Frá því að vegriðsátakið hófst hefur verið skipt um vegrið á tólf brúm af þeim tuttugu sem settar voru í forgang. Þær brýr sem eru komnar með ný vegrið eru: → Borgarfjarðarbrú, en í sumar lauk vinnu við að skipta um vegrið á þeirri fjölförnu brú → Brú yfir Hafnarfjarðarveg við Hamraborg → Brú yfir Kársnesbraut → Brú yfir Nýbýlaveg → Brú á mislægum vegamótum við Digranesveg → Tvær brýr á Miklubraut yfir Reykjanesbraut. → Tvær brýr yfir Elliðaárnar → Brú yfir Markarfljót → Brú yfir Köldukvísl → Brú yfir Leirvogsá Einnig hefur verið skipt um vegrið á brúm sem ekki voru á aðgerðarlistanum en brýnt þótti að uppfæra, svo sem á brú yfir Bústaðaveg. Á þessu ári voru sett ný vegrið á brú á Vífilsstaðavegi og Kauptúni yfir Reykjanesbraut til að skilja að akandi og gangandi vegfarendur. Í farvatninu fyrir 2024 er að uppfæra fleiri vegrið á umferðarþungum brúm, meðal annars á brúm yfir Þjórsá, Reykjanesbraut yfir Fífuhvammsveg, Bjarnardalsá og Ölfusárós. Allar brýr í eigu Vegagerðarinnar eru skoðaðar vandlega á fjögurra ára fresti en sumar þarf að skoða oftar, eða annað hvort ár. Brýr eru aðeins teknar úr umferð ef þær standast ekki kröfur um burð og öryggi vegfarenda en með natni og nútímaaðferðum er hægt að lengja líftíma þeirra og uppfæra svo þær standist nútíma öryggiskröfur. Með þyngri bílum og meiri umferð á vegum um landið og sérstaklega í þéttbýli verður sífellt mikilvægara að umferðamannvirki séu uppfærð samkvæmt nútíma stöðlum og er vegriðsátak Vegagerðarinnar liður í því risastóra verkefni. ↑ Í átakinu felst að fjarlægja eldri vegrið, farga þeim og setja upp vegrið sem eru hærri og sterkbyggðari. ↗ Í fyrrasumar var sett nýtt vegrið á brýr yfir Elliðaárdalinn.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.