Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Síða 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
Tæplega tólf hundruð brýr á Íslandi heyra undir
Vegagerðina. Þar af eru 654 einbreiðar brýr og 532
tvíbreiðar brýr, eða samtals um 31 kílómetri af brúm.
Meðalaldur brúa er 45 ár en þriðjungur þeirra er orðinn
meira en 60 ára gamall. Árið 2019 setti Vegagerðin
af stað átak í vegriðsmálum þar sem gerð var
öryggisúttekt á 900 brúm. Helstu áhættuþættir voru
metnir en sérstök áhersla var lögð á að taka út ástand
og öryggi vegriða til að meta hvar brýnast væri að
skipta út eldri vegriðum fyrir ný og sterkbyggðari vegrið
sem uppfylla gildandi öryggisstaðla.
Úttektin var gerð á brúm sem eru staðsettar á stofn-
og tengivegum um land allt, þar með taldar eru allar
brýr á Hringveginum og brýr á umferðarþyngstu vegum
landsins, en margar þeirra eru á höfuðborgarsvæðinu.
Auk þess var gerð úttekt á brúm þar sem afleiðingar
af slysum geta verið mjög alvarlegar. Þar er um að
ræða brýr sem eru yfir umferðarþungum götum, brýr
með mikla fallhæð og einnig þar sem farið er yfir sjó.
Umferðaröryggi vegfarenda er haft að leiðarljósi í
þessu átaki.
Vegagerðin setti af stað átak í vegriðsmálum
árið 2019. Áformað er að skipta um kílómetra
af vegriði árlega.
Ný vegrið komin á 12
brýr af 20 í vegriðsátaki
Samhliða úttektinni var verkefnum forgangsraðað
og gerð aðgerðaráætlun um að skipta út vegriðum
á tuttugu brúm fyrir árslok 2025. Verkefnið snýst
í grunninn um að fjarlægja eldri vegrið sem ekki
standast nútíma öryggiskröfur, farga þeim og setja upp
ný vegrið, sem eru hærri og sterkbyggðari og uppfylla
gildandi öryggisstaðla.
Jafnframt er nú unnið að fimm ára áætlun um útskipti
á vegriðum á fleiri brúm og vonast er til að Vegagerðin
fái fjármagn til að það verkefni verði að veruleika.
Stefnt er að því að skipta um vegrið á brúm sem
samsvara um heilum kílómetra á ári.
↑
Gerð var úttekt á brúm á
umferðarþyngstu vegum landsins.
Sett var nýtt vegrið við Hamraborg.
→
Sett voru ný vegrið á brú á Vífilsstaðavegi og
Kauptúni yfir Reykjanesbraut fyrr á árinu, til að
skilja að akandi og gangandi vegfarendur.