Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Page 4

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Page 4
4 Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. Tvær aðalvélar auka öryggi Upphaflega stóð til að leggja af ferjusiglingar á Breiðafirði við lok samnings við Sæferðir vorið 2023 en ákveðið var breyta þeirri ákvörðun og halda áfram siglingum, meðal annars í ljósi þess að miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi á sunnanverðum Vestfjörðum með uppbyggingu fiskeldis og aukinna umsvifa í ferðaþjónustu við Breiðafjörð. Einnig er ferjan mikilvæg fyrir íbúa Flateyjar þar sem skipið flytur nauðsynjar til eyjarinnar og er aðalferðamáti ferðafólks sem vill heimsækja Flatey og dvelja þar til skemmri eða lengri tíma. Strax árið 2021 var farið að skoða hvort hægt væri að finna annað skip sem uppfyllti þær kröfur sem settar eru fyrir ferjusiglingar á Breiðafirði. Gerð var krafa um að skipið væri búið tveimur aðalvélum og hefði haffærni fyrir C svæði en siglingaleiðin um Breiðafjörð flokkast sem C svæði. Afar fáar ferjur standa til boða sem geta siglt á C hafsvæði, eru með tvær vélar og geta jafnframt notast við núverandi hafnarmannvirki. Það var því heppilegt að norska ferjan Röst stóð til boða. Vegagerðin keypti ferjuna Röst af Torghatten Nord í Noregi en hún sigldi í Norður-Noregi á ferjuleiðinni Svolvær-Skrova-Skutvik. Skrifað var undir kaupsamning 15. september 2023 en kaupverð ferjunnar var 3,5 milljónir Evra. Stærsti kostur nýju ferjunnar er að hún er með tvö aðskilin framdrifskerfi, þ.e. hún er útbúin tveimur aðalvélum og tveim skrúfum sem stóreykur öryggi farþega. Einnig er hún með öfluga veltiugga sem gerir siglinguna þægilegri og farþegarými er allt á sama dekki. Þá er hún 12 árum yngri en gamli Baldur og aðstaða fyrir farþega er öll hin þægilegasta. Nýi Baldur tekur 250 farþega og rúmar fimm stóra flutningabíla. Til að ferjan gæti þjónað siglingum á Breiðafirði þurfti að ráðast í nokkrar breytingar. Skipið fór í slipp við komuna til landsins hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. í Hafnarfirði sem átti lægsta boð í breytingarnar. Þær fólu m.a. í sér að koma fyrir nýjum þilfarskrana, landfestuvindum, færa til lyftibjörgunarbáta, útbúa geymslusvæði á þilfari og mála skipið að utan. Einnig þurfti að vinna að almennu viðhaldi véla og búnaðar. ↑ Lions-klúbburinn Harpa í Stykkishólmi sá um dýrindis veitingar við athöfnina. ↑ Aðstaða fyrir farþega er til fyrirmyndar. ↓ Baldur var einnig til sýnis í Brjánslæk á sunnudeginum 19. nóvember. Um 40 manns mættu til að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.