Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 5

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Blaðsíða 5
Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. 5 Verðlaunin eru veitt á fjögurra ára fresti og verða afhent fulltrúa eiganda þess mannvirkis sem verðlaunin hlýtur á ráðstefnunni Via Nordica 2024, sem haldin verður í Kaupmannahöfn 10.-12. júní 2024 (https://vianordica2024.dk/). Verðlaunin árið 2024 verða veitt fyrir nýja brú eða endurgerð brúar sem er staðsett á Norðurlöndunum og hefur verið lokið á árunum 2016 til júní 2024. Verkefnið skal vera eftirtektarvert, frumlegt, skapandi eða á annan hátt fela í sér mikilvægt framlag á sviði brúarverkfræði eða til þess svæðis sem verkefnið er staðsett á. Stærð brúarinnar skiptir ekki máli. Norrænu brúarverðlaunin 2024 – óskað eftir tilnefningum Norrænu brúarverðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag á sviði brúarverkfræði með sérstaka áherslu á notagildi þess á Norðurlöndunum. Hvert þátttökuland í brúarnefnd Norræna vegasambandsins (NVF) má tilnefna tvær brýr eða verkefni til verðlaunanna. Dómnefnd skipuð tveim fulltrúum frá hverju þátttökulandi mun velja sigurvegara. Senda skal tilnefningu um brúarverkefni á Íslandi til formanns norrænu brúarnefndarinnar, Guðmundar Vals Guðmundssonar (gvgu@vegagerdin.is), fyrir 31.desember 2023. Tilnefningin skal innihalda → Stutta lýsingu og ljósmynd af brúnni → Lýsingu á verðleikum → Nöfn á verkkaupa, verktaka, hönnuðum og öðrum sem komu að verkefninu. ↓ Brú á Þjórsá sem hlaut norrænu brúarverðlaunin árið 2008. Mynd: Viktor Arnar Ingólfsson

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.