Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Page 15

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Page 15
Framkvæmdafréttir nr. 728 6. tbl. 31. árg. 15 Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar setti ráðstefnuna. Páll Valdimar Kolka Jónsson var fundarstjóri líkt og á síðasta ári. Dr. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, hélt erindið Eldvirkni á Íslandi og hugsanleg áhrif á innviði. Í máli hans kom fram að umfang eldgosavár ræðst af staðsetningu eldstöðvarinnar, afli, stærð og/eða lengd gossins, forvörnum og skipulagi, auk samfélagslegs skilnings og viðbrögðum. Björk Úlfarsdóttir, umhverfis-, gæða- og nýsköpunarstjóri hjá Colas Íslandi, hélt erindið Kolefnishlutlaus bindiefni. Þar greindi hún frá tilraunum sem Colas hefur gert með tveimur lífbindiefnum og hvernig þær hafa tekist til. Einnig fór hún yfir hvaða bikbindiefni eru notuð í vegagerð og hvernig breyta má notkun á biki og nota meira af endurunnu malbiki.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.