Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 11.12.2023, Síða 24
24 Framkvæmdafréttir nr. 728
6. tbl. 31. árg.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar,
opnuðu formlega nýjan Þverárfjallsveg, nýjan
kafla á Skagastrandarvegi og nýja, tvíbreiða brú
yfir Laxá í Refasveit 6. nóvember 2023.
Tveir nýir vegir og ný brú
á Norðurlandi vestra
Klippt var á borða við ný gatnamót Þverárfjallsvegar
og Skagastrandavegar að viðstöddu fjölmenni.
Heildarvegalengd nýrra vega og brúar er um 11,8 km
en einnig voru byggðar nýjar tengingar og heimreiðar,
samtals um 4,5 km að lengd. Nýr Þverárfjallsvegur
og nýr kafli á Skagastrandarvegi bæta samgöngur
á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi vestra, auka
umferðaröryggi vegfarenda og íbúa og tryggja greiðari
samgöngur á svæðinu. Nýju vegirnir eru með bundnu
slitlagi og uppbyggðir með tilliti til snjóa. Hönnunarhraði
veganna er almennt miðaður við 90 km/klst.
hámarkshraða.
Tveir nýir vegir og ein ný brú
Framkvæmdin fólst í byggingu nýs Þverárfjallsvegur í
Refasveit frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi
Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd, byggingu nýs
Skagastrandarvegar frá nýja Þverárfjallsveginum, yfir
nýja brú, að núverandi Skagastrandarvegi norðan við
Höskuldsstaði í Skagabyggð, um 3,3 km að lengd.
Á Skagastrandarveg var byggð ný 106 m löng brú yfir
Laxá í Refasveit. Brúin er í þremur höfum, steinsteypt
og eftirspennt. Brúin er sú fjórða sem byggð er yfir
Laxá á svipuðum slóðum. Sú fyrsta var byggð árið
1876 og var 13 metra löng timburbrú sem var yfir
þröngt gil sem nefnist Ámundahlaup og er vestan við
nýju brúna. Næsta brú var byggð á árunum 1924-1927,
var það járnbent steinbogabrú. Þriðja brúin var byggð
árið 1973, 75 metra löng, einbreið bitabrú.
↑
Nýja brúin yfir Laxá í Refasveit.
↘
Formleg opnun fór fram við ný
gatnamót Þverárfjallsvegar og
Skagastrandarvegar.