Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Blaðsíða 4
VIRK
VIGDÍS JÓNSDÓTTIR framkvæmdastjóri VIRK
STÖÐUG ÞRÓUN
OG GÓÐUR ÁRANGUR
Ég kom til starfa 15. ágúst 2008 og var þá fyrsti fastráðni
starfsmaður VIRK. Gengið var frá ráðningu minni fyrr um
sumarið og áður en ég hóf störf í ágúst fór ég í ferðalag til
Svartfjallalands þar sem ég gekk um fagra náttúru og gat
þá í ró og næði hugsað um þau nýju skref sem ég var að taka á
mínum starfsferli. Ég flaug á milli staða og í einni af þeim ferðum
fannst mér ég þurfa að skrá niður eitthvað af
hugsunum mínum og það eina sem ég hafði
til að skrifa á voru ælupokarnir í flugvélinni.
Þannig voru fyrstu hugmyndir mínar um
uppbyggingu á VIRK skráðar á ælupoka frá
Croatia Airlines, sjá mynd 1, og þá hafði ég í
fórum mínum þegar ég mætti til starfa þann
15. ágúst 2008.
Ég fékk síðan í hendurnar skipulagsskrá
fyrir Endurhæfingarsjóð og þáverandi
forseti ASÍ og starfsmenn ASÍ tóku vel á
móti mér og lánuðu mér eina skrifstofu í
Guðrúnartúni 1. Á fyrstu dögunum setti ég
niður fyrstu hugmyndir að framkvæmda-
ferli þar sem starfsemin var undirbúin
og því ferli var fylgt fyrstu mánuðina, sjá
mynd 2.
Þetta var upphafið á miklu ævintýri, verk-
efnum og tækifærum sem mig hefði í
raun aldrei órað fyrir að gætu beðið mín á
mínum starfsferli. Frá því að hefja störf ein
og fá lánaða eina skrifstofu í Guðrúnartúni
1 hefur VIRK þróast í að vera stofnun sem
hefur haft jákvæð áhrif á líf tugþúsunda
einstaklinga. Samkvæmt könnun Maskínu
á árinu 2022 þá telja 81% landsmanna
VIRK hafa mikla þýðingu fyrir íslenskt
samfélag og um 8% einstaklinga hér á
landi hafa notið þjónustu VIRK. Einnig
kom það fram í könnun Maskínu að 6 af
hverjum 10 einstaklingum hér á landi
þekkja einhvern sér nákominn sem hefur
verið í þjónustu VIRK. Til viðbótar við þetta
má síðan nefna eftirfarandi staðreyndir:
Á ÞESSU ÁRI ERU 15 ÁR SÍÐAN VIRK VAR
STOFNAÐ. SAMIÐ VAR UM STOFNUN OG
FJÁRMÖGNUN VIRK Í KJARASAMNINGUM
FYRRI HLUTA ÁRS 2008 OG ÞÁ UNDIR
NAFNINU „ENDURHÆFINGARSJÓÐUR“
SÍÐAR VAR NAFNINU BREYTT Í „VIRK-
STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐUR“
OG OFTAST NOTUM VIÐ EINGÖNGU
NAFNIÐ „VIRK“.
Það sem
hefur þó
kannski þroskað
mig mest er að fá
innsýn inn í aðstæður
og líðan þeirra
einstaklinga sem leita
til VIRK og að fá að
heyra sögu þeirra til
aukinnar vinnugetu
og lífsgæða.
Mynd 1
Mynd 2
6 7virk.is virk.is