Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Blaðsíða 15
VIÐTAL
VIÐ GETUM MÆLT
NÆSTUM ALLT
HEIÐAR KARLSSON framkvæmdastjóri Vista
VISTA VERKFRÆÐISTOFA ER EITT
ÞEIRRA FYRIRTÆKJA SEM FÆR
VIÐURKENNINGU SEM VIRKT FYRIRTÆKI
2023 FRÁ ATVINNUTENGINGU VIRK. AÐ
BÍLDSHÖFÐA 14 Í REYKJAVÍK OPNAR
HEIÐAR KARLSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
DYRNAR AÐ HÚSAKYNNUM ÞESSA
MERKA FYRIRTÆKIS OG FYRR EN VARIR
LEIÐIR HANN OKKUR Í ALLAN SANNLEIKA
UM UPPHAF SAMSTARFS ÞESS VIÐ
ATVINNUTENGINGU VIRK.
Þetta samstarf byrjaði þannig að einn starfsmaður okkar
var að fara á eftirlaun og kominn í fimmtíu prósent starf.
Við þurftum að ráða einhvern til starfa á móti honum og mér
datt í hug að byrja á að leita fyrir mér hjá VIRK – skoða hvort
þar væri einhver sem við gætum aðstoðað við að komast í gang
á vinnumarkaðinum. Ég vann áður hjá fyrirtækinu IMS Vintage
Photos og þar var fólk frá VIRK sem var fóta sig á vinnumarkaðinum
og gekk vel.
Þegar sem sagt okkur hjá Vista verkfræði-
stofu vantaði einstakling í hálft starf fannst
mér að þetta gæti verið gott tækifæri fyrir
þjónustuþega frá VIRK sem væri að leita
að vinnu. Ég leit satt að segja á það sem
samfélagslega skyldu að leita fyrst til VIRK
og hafði því samband við atvinnulífstengil
þar. Hann sendi til okkar nokkrar umsóknir.
Eftir athugun völdum við starfsmann frá
VIRK í fjörutíu prósent vinnu hjá okkur og við
vorum strax hæstánægðir. Nú er þessi aðili
kominn í fimmtíu prósent starfshlutfall og
allir sáttir,“ segir Heiðar Karlsson.
En hvers konar starf er unnið hér á þessari
verkfræðistofu?
„Vista verkfræðistofa var stofnuð 1984 af
Andrési Þórarinssyni sem hefur rekið stofuna
síðan. Fyrirtækið hefur alla tíð sérhæft
sig í fjölþættum mælingum. Við sinnum
meðal annars margvíslegum mælingum
fyrir sveitarfélögin, opinbera aðila og stærri
fyrirtæki. Við getum mælt næstum allt –
loftgæði, veðurfar, gróðurmælingar og jarð-
vegsmælingar svo eitthvað sé nefnt.
Við erum einnig mikið í alls konar talningum,
svo sem umferðartalningum. Einnig erum
við mikið í hitamælingum – í einu orði
sagt – innviðaeftirliti. Við hjálpum meðal
annars veitufyrirtækjunum að fylgjast með
heitu og köldu vatni og frárennsli. Allt er
þetta svo tekið saman í „skýjalausn“ sem
heitir Vista Data Vision. Þar er þetta geymt
og birt til upplýsinga fyrir þá sem þurfa.
Við erum fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í
Interneti hlutanna – (Internet of Things).
Þess má geta að við eru sérstaklega stoltir af
jarðvegsmælingunum í hlíðunum fyrir ofan
Seyðisfjörð og Eskifjörð sem við sinnum fyrir
Veðurstofu Íslands.“
Að fjárfesta í tíma
Krefst starfið hérna sérmenntunar?
„Já, en hluti af vinnunni hér er eftirlitsstarf,
í það þarf enga sérmenntun. Við slíka vinnu
hóf okkar aðili frá VIRK starf í upphafi. Smám
saman fólum við honum fleiri verkefni.
Við það óx sjálfstraust hans, sjálfsmyndin
batnaði og við gátum fengið honum enn
fjölbreyttari verkefni. Það besta sem hægt er
að gera við svona aðstæður er að „fjárfesta
í tíma“ – það er að gefa sér tíma til að sinna
viðkomandi og segja honum til.
Ég er fimmtugur núna og hef verið stjórnandi
alla mína starfstíð. Ég veit að fólk er ekki
fullkomið, það lendir í áföllum í lífinu og
þolir ekki endalaust álag. Þetta hefur maður
ítrekað séð gerast í þeim tæknigeira sem
ég starfa í – flott fólk að lenda í alvarlegri
kulnun og sjúkdómum. Í slíkum tilvikum
hefur viðkomandi gjarnan nýtt sér úrræði á
borð við VIRK til að koma sér aftur í gang.
Mér finnst eðlilegt að fyrirtæki hjálpi til við
þannig uppbyggingu.
mín er sú að ef maður hefur tíma til að sinna
starfsmanni á þennan hátt þá sér maður
árangur.“
Hvernig kanntu við þig í mentor
hlutverkinu?
„Mér finnst það skemmtilegt. Maður reynir
að setja sig í ákveðnar stellingar – vera ekki
of kröfuharður – fara ekki of djúpt í hlutina
strax. Byrja á að leggja áherslu á að fólk mæti
vel. Ekki að krefjast of mikillar vinnu fyrstu
dagana heldur fremur að viðkomandi lagi sig
að aðstæðum og kynnist umhverfinu. Mér
finnst líka félagslegi þátturinn mikilvægur,
að einstaklingurinn komist inn í hópinn,
spjalli og myndi tengsl þannig.“
Sagðir þú samstarfsfólkinu frá því að
viðkomandi aðilar hafi komið frá VIRK?
„Já, það var ekki leyndarmál og það á ekki að
vera þannig. Menn vita og skilja að allir geta
lent í áföllum. Slíkt er eðlilegt. Starfsfólkið er
fyrirtækið í raun og kallar því á mesta athygli
stjórnanda.“
Hverjir eru mikilvægustu eiginleikar
starfsfólks?
„Í mínum huga er það jákvætt viðhorf
og vera opinn fyrir því að hlutir eiga til að
breytast. Það er mikilvægt að hrósa fólki,
sýna því athygli og gleyma ekki gleðinni í
vinnunni. Stundum verður fólk svo upp-
tekið af starfinu og vill gera svo vel að
það gleymir að staldra við – draga djúpt
andann og slaka á.
Konan mín er hjúkrunarfræðingur. Þegar
hún kemur heim úr vinnunni og segir
mér frá því sem fram fer á bráðadeildinni
þá finnst mér að áhyggjur mínar hér séu
léttvægar miðað við það að hjúkra kannski
fárveikum einstaklingum – þetta er ágætis
jarðtenging.“
Hefurðu haft samskipti að einhverju marki
við atvinnulífstengla frá VIRK?
„Já, ég ræddi á sínum tíma við atvinnu-
lífstengla VIRK í síma og þeir hafa komið
hingað til að skoða starfsemina. Mér finnst
þeirra nálgun gagnvart viðfangsefninu
vera flott. Þar eru settar fram ákveðnar
væntingar. Skýrt plan um hvernig fylgja
eigi viðkomandi starfsmanni áfram og
hverju hann eigi að skila af sér. Þetta kallaði
á sínum tíma á að staldra við og hugsa
málið, hvers væri að vænta og skrifa það
svo niður – móta ákveðna verklýsingu,
nálgun og viðveruáætlun. Þá lendir hinn nýi
starfsmaður ekki í því að koma í vinnuna og
ekkert sérstakt liggi fyrir um hvað hann eigi
að gera. Slíkt er óþægilegt.“
Menn vita og
skilja að allir geta
lent í áföllum. Slík er
eðlilegt.
Þetta er í raun svipað og að taka starfs-
nema úr skóla og hjálpa honum að komast
inn í starf. Ég fór sjálfur á samning þegar
ég var ungur. Ég lauk stúdentsprófi og
ætlaði að fara í sagnfræði, en fannst tölvur-
nar skemmtilegri. Ég kláraði því nám í
rafeindavirkjun og fór inn í tölvuheiminn.“
Fólk vill yfirleitt standa sig vel
Hafa fleiri komið til starfa hjá ykkur frá
VIRK?
„Já. Seinna var haft samband við okkur frá
VIRK og spurst fyrir um hvort við hefðum
laust starf fyrir ákveðinn einstakling. Ég
sagði bara: – „Ekkert mál, við skulum
kippa viðkomandi inn og byggja hann upp
í rólegheitunum.“ Þetta var í raun ekki svo
flókið, ég fjárfesti bara í svona hálftíma
til klukkutíma af og til með viðkomandi
starfsmanni og hann sinnti sínum störfum
vel en er nú kominn í fullt starf annars
staðar.“
Hvaða ráð telur þú gagnleg til að hjálpa
fólki að snúa til vinnu?
„Ég held að það skipti miklu máli fyrir þann
sem er að fóta sig á vinnumarkaðinum á
ný að einhver „taki hann að sér“, verði eins
konar mentor. Peningar hjálpa einstaklingi
ekki mest í þessari stöðu heldur að einhver
gefi sér tíma til að aðstoða hann. Mín reynsla
af fólki er sú að það vill yfirleitt standa sig vel
í starfi, gera góða hluti. Persónuleg afstaða
29virk.is28 virk.is