Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Blaðsíða 14
VIÐTAL
Hvaða störf eru það almennt sem henta
hjá Össuri fyrir þá sem eru að fóta sig í
atvinnulífinu á nýjan leik?
„Framleiðslustörf, einkum í sílikondeildinni
hjá okkur. Þar eru framleiddar sílikon hulsur
sem gera fólki kleift að nota gervilimina frá
okkur. Slíkar hulsur eru meðal annars settar
utan um fótstubbinn sem gervifóturinn er
svo tengdur við. Framleiðslustörf af þessu
tagi eru nákvæmnisvinna og mikil þjálfun
fer fram áður en fólk getur orðið fullgildur
starfsmaður. Engum er hent út í djúpu
laugina,“ segir Dagbjört og Anna Dóra kinkar
kolli.
En hvernig starfar þessi deild?
„Sílikondeildin skiptist í stöðvar eða
svokallaðar sellur og hver og einn heldur
sig að mestu innan sinnar sellu. Vinnan er
ekki erfið líkamlega að öðru leyti en því að
hún útheimtir miklar stöður. Þetta hentar
því kannski ekki fólki sem á erfitt með að
standa lengi. Fólk sem þarna starfar þarf
að geta staðið allan daginn því nánast öll
vinna í framleiðslunni hjá okkur er svokölluð
standandi vinna,“ segir Anna Dóra. „Þessar
framleiðslueiningar eru þær deildir okkar
sem einna helst hafa getað tekið á móti
fólki frá VIRK,“ skýtur Dagbjört inn í.
Samskiptahæfni er mikilvæg
Hvernig nær fólkið frá VIRK sambandi við
ykkur?
„Atvinnulífstengill frá VIRK hefur samband
og sendir í framhaldi af því ferilskrá og
síðan er viðkomandi aðili boðaður í viðtal,“
segir Anna Dóra.
Og hvað er það sem þið einkum lítið á í
atvinnuviðtalinu?
„Samskiptahæfni er mikilvæg. Fólk þarf að
geta rætt auðveldlega við samstarfsaðila
og viðkomandi þarf að tala annað hvort
íslensku eða ensku. Við göngum síðan
um svæðið með þeim aðila sem er í
atvinnuviðtalinu og sýnum honum hvað
fram fer í hverri deild.
Síðan er haft samband við fyrri
vinnuveitendur til þess að heyra í þeim
hljóðið. Ef okkur líst svo vel á viðkomandi
þá ráðum við hann í vinnu í þrjá mánuði til
reynslu. Þetta á jafnt við um þá sem koma
hingað frá VIRK og aðra sem við ráðum.
Almennt komum við eins fram við þá sem
koma frá VIRK og aðra sem hingað koma
til starfa.“
Er fólk frá VIRK í minna vinnuhlutfalli en
aðrir hér?
„Það hefur komið fyrir. Það eru dæmi
um að fólk byrji í skertu starfshlutfalli en
algengast er núna að fólk sé ráðið í fullt
starf. Ég man eftir einum aðila sem byrjaði
í 30% vinnu og smá jók svo við sig starfs-
hlutfallið,“ segir Dagbjört.
„Ég hef eingöngu ráðið fólk frá VIRK í fullt
starf, en það er líka stutt síðan ég tók við
sem mannauðsfulltrúi,“ segir Anna Dóra.
Eru störfin svipuð í þessari sílikondeild?
„Nei. Hver sella sér um ákveðinn hluta
af ferlinu. Ein sér til dæmis um að sauma
utan um hulsuna, önnur sér um að pakka,
sú þriðja að merkja og þannig mætti telja.
Engin sella gerir það sama. Sellurnar eru tíu
talsins núna – þeim hefur farið fjölgandi.
Þess má geta að þar sem er saumað getur
fólk setið hálfan daginn og staðið svo hinn
helminginn,“ segir Dagbjört.
Samstarfið við VIRK hefur verið
mjög gott
Hvernig hefur aðlögun gengið hjá þeim
sem koma frá VIRK?
„Hún hefur gengið mjög vel hjá
langflestum. Fólkið sem kemur frá VIRK
er tilbúið til þess að vinna og mjög viljugt
til starfa. Flestir sem koma frá VIRK
eru Íslendingar en þó koma hingað líka
starfsmenn af erlendum uppruna.
Verkstjórarnir í framleiðslueiningunum
taka við fólkinu og kynna það inni í sinni
sellu. Þeir vita hverjir koma frá VIRK en
eru ekkert sérstaklega að geta um það
við samstarfsfólkið. Fólkið frá VIRK getur
svo einsog aðrir leitað til verkstjórans ef
eitthvað þarf að ræða,“ segir Anna Dóra.
Hvað hafa margir frá VIRK unnið hérna?
„Á bilinu tíu til tuttugu manns og af
báðum kynjum. Í framleiðslueiningunum í
sílikondeildinni er hlutfallið milli kynja álíka,
kannski aðeins fleiri karlar. Lagt er upp úr
stundvísi, nákvæmni og samstarfsvilja.
Samstarfið við VIRK hefur verið mjög gott.
Atvinnulífstengillinn frá VIRK hefur sam-
band og spyr hvort hann megi senda okkur
ferilskrá einhvers tiltekins einstaklings í
atvinnuleit. Sé ekki neitt laust þá biður
hann okkur um að hafa viðkomandi aðila
í huga síðar. Þegar eitthvað losnar þá
skoðum við málið. Það liggja alltaf fyrir
umsóknir hjá okkur og komi umsókn frá
þjónustuþega VIRK þá er sú umsókn þar
á meðal og skoðuð eins og hinar. Almennt
má segja að allir séu hér á sama báti,“ segir
Dagbjört.
Hvað margir vinna hjá Össuri Iceland ehf?
„Hér á Íslandi eru þeir um sex hundruð
talsins,“ segir Anna Dóra.
„Við erum eitt af stóru fyrirtækjunum,“
segja þær stöllur stoltar.
„Hér innandyra er mjög mikið af sérfræði-
þekkingu á hinum ýmsu deildum og
fyrirtækið er alltaf að stækka. Mjög margir
verkfræðingar með ýmis konar sérmenntun
vinna hér og svo erum við með marga
starfsmenn sem eru menntaðir í hinum
ýmsu iðngreinum, einkum á verkstæðunum
þar sem ýmsar vélar eru smíðaðar til
notkunar í framleiðslunni. Má þar nefna
smiði, rennismiði og rafvirkja. Þetta er
ofboðslega blönduð starfsemi en allir borða
svo í mötuneytinu,“ bæta þær við.
Er vaxandi eftirspurn eftir vörum frá
Össuri?
„Já. Þess má geta að stoðtækjafræðingar
frá Noregsdeild Össurar hafa farið til
Úkraínu. Þeir voru að kenna þarlendum
á þau stoðtæki sem fólk þarf á að halda
vegna afleiðinga stríðsins sem geisar þar.
Erlendis eru á þriðja tug starfsstöðva sem
tilheyra fyrirtækinu Össuri. Á heimsvísu er
fyrirtækið með fjögur þúsund starfsmenn,“
segir Dagbjört.
Geta þjónustuþegar frá VIRK fengið vinnu
við erlendar starfsstöðvar Össurar?
„Nei. Allar stöðvarnar eru reknar sem
séreiningar og þjónustuþegar frá VIRK geta
aðeins fengið vinnu hér í höfuðstöðvunum
á Íslandi. En auðvitað er samstarf á milli
þessara stöðva en starfsmannahald og
allt slíkt er alveg bundið hverju landi fyrir
sig. Sum Evrópulönd reka saman eina
sameiginlega stöð. Þannig er staðan
núna. Þetta er mikil breyting frá því Össur
Kristinsson stofnaði þetta fyrirtæki árið
1971. Hann er ekki lengur hér. Forstjóri
Össurar ehf. er Sveinn Sölvason,“ segir
Dagbjört.
Starfsemin hjá VIRK ótrúlega flott
Hvernig eru launin í sílikondeildinni?
„Við gætum þess að vera alltaf nokkrum
prósentum yfir lágmarkstaxta. Reynum að
gera betur en almennt gerist á markað-
inum, segir Anna Dóra.
Er ánægja með samstarfið við VIRK hér
innanhúss?
„Svo sannarlega. Starfsemin sem rekin
er hjá VIRK er ótrúlega flott. Að koma
fólki á þennan hátt aftur á skrið á vinnu-
markaðinum og í lífinu. Það er afskaplega
gott að geta tekið þátt í þessu – svo gott
fyrir hjartað. Atvinnulífstengillinn hefur
komið hingað og skoðað aðstæður. Það var
gagnlegt að hitta hann og kynnast honum
aðeins,“ segir Anna Dóra.
Hafið þið bent fólki á að leita til VIRK ef
það hefur orðið veikt eða örþreytt?
„Ég veit um tilvik þar sem trúnaðarlæknir
okkar vísaði starfsmanni héðan til heimilis-
læknis til að sækja um hjá VIRK. Það eru
reyndar nokkur dæmi um slíkt hér í gegn-
um árin. Þetta samstarf getur því að vissu
leyti verið gagnverkandi. Eins og Anna
Dóra sagði áðan þá gefur það manni gott
í hjartað þegar maður veit að maður er að
hjálpa og maður finnur gleðina hjá fólki
yfir því að komast aftur á vinnumarkaðinn.
Maður finnur og veit að starfsviljinn er svo
sannarlega til staðar,“ segir Dagbjört.
Að loknu samtalinu í glerherberginu göng-
um við aðeins um húsakynni Össurar ehf.
Þau eru björt og stór og enn er verið að
byggja yfir starfsemina. Í hverri deild er fólk
að störfum, í álíka ferðalag, nýliðaferð, fara
þeir sem ráða sig til starfa hjá fyrirtækinu.
Áhugi blaðamanns beinist ekki síst að
sílikondeildinni þar sem fólkið frá VIRK
starfar – þangað væri gaman að koma!
„Það er því miður ekki hægt, sílikondeildin
er algjört leyndarmál. Þangað er ekki
leyfilegt að fara með aðkomufólk,“ segja
þær Anna Dóra og Dagbjört. Við það situr.
Spennandi endir á athyglisverðri heimsókn
í fyrirtækið Össur Iceland ehf.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Ljósmynd: Lárus Karl Ingason
Starfsemin sem
rekin er hjá VIRK
er ótrúlega flott. Að
koma fólki á þennan
hátt aftur á skrið á
vinnumarkaðinum
og í lífinu.
26 27virk.is virk.is