Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Blaðsíða 30
AÐSEND GREIN
VINNA OG
VERKIR
ÞORVALDUR SKÚLI PÁLSSON
STEFFAN WITTRUP MCPHEE CHRISTENSEN
MORTEN HØGH
Starfstengdir stoðkerfisverkir teljast
til verkjaástands sem rekja má til,
eða leiðir af sér, skerta starfsgetu
til skemmri eða lengri tíma. Hversu
mikið starfsgetan skerðist fer eftir ýmsu,
meðal annars hversu slæmir verkirnir eru,
eðli þeirra og öðrum tengdum einkennum.
Fyrir utan það að þeir takmarka starfsgetu,
er einnig mikilvægt að taka tillit til þeirrar
skerðingar á lífsgæðum sem langvinnir
stoðkerfisverkir valda1. Tölur frá Evrópu
sýna að 40% vinnufærra einstaklinga
upplifa verki a.m.k. einu sinni á ári og að
20% allra vinnufærra karla og kvenna þjást
af viðvarandi verkjum2. Langalgengast er
að fólk á vinnumarkaði upplifi og kvarti yfir
þrálátum verkjum í og frá hálsi og baki3.
Starfstengdir stoðkerfisverkir eru flókið
fyrirbæri þar sem fjölmargir samverkandi
þættir liggja oft að baki (tafla 1). Þetta
torveldar greiningu á hver undirliggjandi
ástæða verkjanna er í raun, einkum og sér
í lagi vegna þess að erfitt er að sýna fram
á orsakasamhengi milli þessara þátta (eða
annarra) og verkja. Sem dæmi má nefna
síendurteknar lyftur í vinnu sem geta mögu-
lega aukið bakverki.
En lyftivinna með litla eða létta hluti
minnkar ekki endilega líkurnar á að fá
verk í bakið. Þess vegna má segja, að þó
að mikilvægt sé að reyna að finna alla þá
þætti sem geta aukið líkur á vinnutengdum
stoðkerfisverkjum, er ekki öruggt að sú
leit geti fækkað eða stytt veikindaleyfi eða
ótímabært brotthvarf af vinnumarkaði.
Það er hægt að hafa áhrif á marga af fyrr-
nefndum þáttum (t.d. líkamlega þætti,
streituvalda og svefngæði) á meðan
erfitt getur verið að fást við þætti eins
og menntunarstig og tekjur. Engu að
síður er mikilvægt að undirstrika, að það
getur verið erfitt að koma auga á hvað
það er sem veldur verkjum hjá tilteknum
starfsmanni. Burtséð frá orsök verkja er
mikilvægt að meðhöndlun slíkra einkenna
taki mið af öllum þeim þáttum sem geta
stuðlað að verkjum. Það er ekki nóg að
heilbrigðisstarfsmenn geri sér grein fyrir
þessu flækjustigi þar sem rannsóknir sýna
að starfsmenn og vinnuveitendur þurfa
einnig að gera sér grein fyrir því5.
Af ofangreindu má sjá, að margir sam-
verkandi þættir geta hamlað starfsgetu, en
sálfræðilegir þættir geta í sumum tilvikum
verið meginástæður vandans. Kulnun í
starfi er gott dæmi um þetta. Í þessari grein
er athyglinni hinsvegar beint að fjarveru frá
vinnu þar sem undirliggjandi ástæður eru
stoðkerfisverkir. Í greininni fjöllum við um,
hvernig mikilvægt er að vinna með slíka
verki frá mismunandi sjónarhornum, þ.e.
við munum ræða æskilegar áherslur heil-
brigðisstarfsfólks, hvað einstaklingur með
verki getur sjálfur gert til að flýta batanum
og hvernig vinnustaðurinn getur nýst sem
mikilvægur þáttur í bataferlinu.
Vinna og verkir – sjónarhorn heil-
brigðisstarfsmannsins
Það getur verið freistandi að halda því fram
að mikil og krefjandi erfiðisvinna, sérstaklega
þar sem um er að ræða síendurteknar lyftur
í óæskilegri líkamsstöðu, geti með tímanum
haft skaðleg áhrif. Ef skoðuð eru lífafl-
fræðileg áhrif slíkrar vinnu, þá virðist það
að nokkru leyti rétt. Til dæmis vitum við að
það að beygja sig fram, sitja með krosslagða
fætur eða sitja með bogið bak í hangandi
stöðu, eykur töluvert álag á hryggjarliði og
hryggþófa, álagið er langt umfram það sem
mælist þegar setið er eða lyft með beinu
baki.6 Þetta þýðir þó ekki endilega að áverki
hljótist af, heldur einfaldlega að álagið sé
mismunandi eftir því hvaða líkamsstöðu
maður er í.
Hinsvegar er mikilvægt að hafa í huga
að þó að ákveðið orsakasamhengi virðist
vera til staðar milli hreyfingar, álags og
slits, þá upplifa ekki allir verki þrátt fyrir
að þessir þættir séu til staðar. Reyndar
er það svo, að hjá sumum virðist skortur
á hreyfingu og breytileika í hreyfimynstri
vera hluti af vandamálinu. Þetta sést til
dæmis hjá einstaklingum með bakverki,
sem hafa tilhneigingu til að hreyfa sig,
að miklu leyti, alltaf eins og eiga erfiðara
Líkamlegir
þættir
Einstaklingsbundnir
þættir Umhverfisþættir Þættir tengdir
þjóðfélagsgerð
• Lyfta og bera
• Vinna í óþægilegum
líkamsstöðum
• Endurteknar athafnir
• Að vinna á miklum hraða
• Streita
• Hugsanir tengdar heilsu
• Hugsanir tengdar
verkjum
• Gæði svefns
• Félagslegur stuðningur
• Menntunarstig
• Aldur
• Kyn
•Tekjur
• Hönnun vinnustaðar
• Skipulagning vinnustaðar
Tafla 1 Yfirlit yfir ýmsa þætti sem geta tengst vinnutengdum stoðkerfisverkjum. Unnið út frá Isusi et al4
með að slaka á bolvöðvunum (kvið og
bakvöðvar) samanborið við einkennalausa
einstaklinga7-9.
Með öðrum orðum þá hreyfa þessir
einstaklingar sig oft á þann hátt að álagið
á bakið eykst frekar en hitt. Álag er ekki
einungis bundið við það að lyfta þungum
hlutum síendurtekið, heldur getur það líka
byggst upp yfir lengri tíma. Gott dæmi um
þetta eru langvarandi setur, sem oft eru
settar í samhengi við eymsli/verki í baki,
hálsi og herðum, sérstaklega ef bakið er
ekki beint/setið er með beint bak. Ef litið
er til rannsókna sést þó að sáralítil fylgni
virðist vera milli setstöðu og verkja10. Engu
að síður er það almennur skilningur meðal
heilbrigðisstarfsmanna11,12 og almennings13
að það að vera beinn í baki (sitjandi og
standandi) sé betra og „réttara” heldur en
að sitja, standa og lyfta t.d. með bogið bak.
Í þessu tilliti er mikilvægt að hafa í huga
að það er ekki endilega líkamsstaðan sem
er rétt eða röng, heldur frekar hversu lengi
eða oft við höldum sömu líkamsstöðu. Það
er nefnilega svo, að flestir þeirra sem eru
einkennalausir eða einkennalitlir, skipta
reglulega um líkamsstöðu og þar gildir einu
hvort um er að ræða setstöðu, standandi
eða liggjandi stöðu. Þeir skipta gjarnan
reglulega um stöðu án þess að hugsa sig
um. Með þetta í huga, gæti það orkað
tvímælis að segja að ef/þegar maður finnur
fyrir verkjum, eigi maður allt í einu að byrja
framkvæma hreyfingar á ákveðinn hátt.
Flest okkar þekkja það að upplifa óþægindi
eftir að hafa setið lengi eða lyft einhverju
þungu endurtekið14 en það er ef til vill þar
sem vandamálið liggur, þ.e.a.s. ekki í því að
eymslin séu afleiðing síendurtekins áreitis,
heldur frekar að einkennunum sé haldið við
af t.d. löngum setum eða þungum lyftum. Í
Lykilatriðið hér
er því oft að sýna
starfsmanninum
(og í mörgum
tilvikum
vinnuveitandanum
einnig) hvernig
hægt sé að
framkvæma
athafnir daglegs
lífs og vinnu á
mismunandi hátt.
58 59virk.is virk.is