Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Blaðsíða 11
VIÐTAL
FALLEGT AÐ HORFA Á FÓLK
GRÍPA TÆKIFÆRIÐ
EDDA SIF SÆVARSDÓTTIR sérfræðingur hjá VIRK
VIÐ HITTUM EDDU SIF SÆVARSDÓTTUR
FYRIR Í BJÖRTUM OG LITFÖGRUM
HÚSAKYNNUM VIRK VIÐ BORGARTÚN
ÞAR SEM HÚN STARFAR MEÐAL
ANNARS SEM RÁÐGJAFI.
Ég réði mig fyrst til VIRK sem svokallaður „hlaupandi ráðgjafi“. Það
var rétt áður en farsóttin Covid19 skall á. Starfsemin breyttist við
þær erfiðu aðstæður, mitt hlutverk var þá að fara þangað sem mín var
þörf hjá hinum ýmsu stéttarfélögum til þess að stytta biðlista sem höfðu
myndast. Ég hef starfað í rösk fjögur ár hjá VIRK, nú sem ráðgjafi hér í
Borgartúni,“ segir Edda Sif Sævarsdóttir og brosir. Nærvera hennar er hlý
en um leið athugul. Spurð um menntun svarar hún:
„Ég fór í félagsfræði í Háskóla Íslands – það var á þeim tíma sem fólk
blaðaði í bókum til að leita upplýsinga og læra um samfélagið. Eftir
BA-nám sinnti ég ýmsum störfum en tók svo meistarapróf í náms- og
starfsráðgjöf. Í því námi er lögð áhersla á að hlusta og spegla það sem
fólk er að segja. Að spegla er að endursegja með öðrum orðum frásögn
einstaklings þannig að ljóst sé að enginn misskilningur sé í gangi. Það er
mikilvægt að hlusta og skilja rétt það sem sagt er.“
Lærðir þú eitthvað um líkamstjáningu í
þínu námi?
„Já en einkum út frá viðtalstækni, til dæmis
hvernig við sem ráðgjafar ættum að koma
fram. Líkamstjáning er mikilvægt tæki.
Þegar þjónustuþegar VIRK koma til mín í
upphafi er hægt að lesa töluvert í líkams-
tjáningu þeirra. Atriði eins og hvernig fólk
situr og hvort það er með úlpuna rennda
upp í háls segja sitt. Í þriðja eða fjórða viðtali
skilur það kannski svo úlpuna eftir á öðrum
stól – þá er það orðið öruggara með sig. Að
halda fast um úlpu og trefil sýnir að fólk er í
vörn. Líkamstjáning er í raun partur af hinni
virku hlustun.
Þegar ég var ráðin til VIRK höfðu myndast
biðlistar, því kom upp þessi hugmynd hjá
VIRK að búa til stöðu svokallaðs „hlaupandi
ráðgjafa“. Markmiðið var að stytta biðlistann.
Í stað þess að ráða fleiri ráðgjafa inn hjá
stéttarfélögunum var ég ráðin í það starf. Ég
fór þá á viðkomandi stað og var með fólk í
ráðgjöf í húsnæði hinna ýmsu stéttarfélaga.“
Reyni að mæta fólki þar sem
það er statt
Fannstu mun á einstaklingum eftir því í
hvaða stéttarfélagi það var?
„Það skiptir í raun engu máli hvaða menntun
þú hefur eða hvaða starfi þú sinnir, allir geta
fengið bakslag – veikindi, slys eða kulnun.
En maður horfir ekkert á það hvaðan fólk
kemur heldur hvernig það er á sig komið –
reynir að mæta fólkinu þar sem það er statt.
Kulnun er talsvert í umræðu hjá fjölmiðlum
en er ekki algengasta ástæða þess að fólk
sækir um í starfsendurhæfingu. Gögn VIRK
sýna að fólk með kulnunareinkenni er ekki
stærsti hópurinn sem til okkar leitar – en
talsverður partur þó, klárlega.“
Hvernig áttar ráðgjafi sig á hvað er í
rauninni að í hverju tilviki?
„Tilvísun frá heimilislækni er forsenda
þess að fólk sé tekið í þjónustu hjá VIRK.
Fyrir hendi eru því klínískar greiningar
læknisins sem maður getur í upphafi byggt
á og spurningarlistar sem einstaklingar
svara í upphafi á Mínar síður VIRK. Þessar
grunnupplýsingar liggja fyrir er fólk kemur til
ráðgjafa – aðrar upplýsingar þarf hann að
fá frá einstaklingunum sjálfum. Þær koma
ekki endilega fram á fyrri stigum, geta verið
viðkvæmar og erfiðar frásagnar. Stundum
er um að ræða lífsreynslu sem fólk taldi sig
vera búið að vinna úr og vill gleyma – en svo
gerist eitthvað sem rífur sárið upp.
Til að samstarfið á milli ráðgjafa og
þjónustuþega VIRK verði gott þarf helst að
myndast trúnaðarsamband. Yfirleitt gengur
þetta vel því flestir sem koma í endur-
hæfingu hjá VIRK sækjast eftir þessari
þjónustu. Fólkið vill ná bata – líða betur og
er tilbúið til að horfast í augu við stöðuna
eins og hún er og gera eitthvað til þess að
laga hana. Fólk er þakklátt að fá þjónustu
hjá VIRK og vill sækja þau úrræði sem því
stendur til boða. Eftir svona fjögur skipti er
maður kominn með nokkuð góða mynd af
því sem að er.“
VIRK er fyrst og fremst
starfsendurhæfing
Er snemma byrjað að leggja línurnar hvað
gera eigi?
„Ýmislegt kemur strax í ljós. Til dæmis ef
um stoðkerfisvanda er að ræða. Þá er vísað
á sjúkraþjálfara. Eða ef mikil streita er í lífi
einstaklings, þá er að finna steitunámskeið
sem hentar. En flóknari vandamál koma
kannski síðar upp á yfirborðið og þá úrræði
gagnvart þeim.
VIRK er fyrst og fremst starfsendurhæfing.
Markmiðið er að fólk komist aftur inn á
vinnumarkaðinn. Stundum stefnir fólk á nám
til að komast í vinnu síðar eða þá í einhvers
konar virkni í samfélaginu. Fyrsta markmiðið
er svokallað þátttökumarkmið, sem beinist
að því að komast út á vinnumarkaðinn. Ekki
er þá endilega stefnt að hundrað prósent
vinnu því slíkt er ekki raunhæft fyrir alla.
Sumir geta ekki sinnt nema takmörkuðu
starfshlutfalli eða jafnvel vilja það ekki.
Þegar til okkar leitar einstaklingur með
enga vinnugetu en kemst svo kannski í
sextíu prósent starfshlutfall þá er það mikill
árangur.“
Hverjir eru helstu erfiðleikarnir sem þér
sýnist að fólk eigi við að stríða sem til
ykkar leita?
„Fólk ætlar sér gjarnan of mikið. Ætlar að
standa sig svo óskaplega vel í öllu sem
það tekur sér fyrir hendur en sýnir sjálfu
sér of litla mildi og samkennd. Það vill
klífa metorðastigann í vinnunni, samhliða
því að klífa fjöll fjórum sinnum í viku, vera
í matarklúbbi og sinna heimili, börnum
og öldruðum foreldrum frábærlega. Það
vill sinna öllu á fullkominn hátt í starfi og
einkalífi en jafnframt missa ekki af neinu í
„sósíallífinu“. Segja má að það sé ofurkrafa á
fólk að vera alls staðar og gera allt mjög vel.“
Er þetta stéttskipt krafa?
Nei, mér finnst þessi krafa óháð því hvar
í stétt fólk stendur. Líka er áberandi hvað
fólk á erfitt með að segja nei. Þetta virðist
vera landlægt á Íslandi og vera hvorki tengt
stéttum eða aldri. Þetta, að gera aðeins meira
en maður getur. Á þessum hraðakstri verður
fólk yfirkeyrt. Erfiðast er oft að fá fólk til þess
að stíga aðeins út úr þessum hugsunarhætti,
skilja að það skiptir ekki meginmáli þótt
óhreint leirtau sé í vaskinum eða krakkarnir
geti ekki farið í sömu peysunni í skólann sem
þeir voru í daginn áður.
Oft skiptir meira máli að fólk leggist upp
í sófa og hvíli sig heldur en að það taki
fram skúringafötuna eða ryksuguna. Sam-
félagsmiðlar virðast eiga þarna nokkurn hlut
að máli. Þótt margt sé þar jákvætt þá dregur
fólk gjarnan upp glansmynd af tilveru sinni
og aðstæðum og gefur þannig upp ranga
mynd af stöðu sinni. En það vita ekki hinir
og máta sig við glansmyndina. Fólk er þó
að verða meðvitaðra um þetta en áður var.
Þetta er á vissan hátt sorglegt því flestir eru í
raun að gera sitt besta. Það ætti að vera nóg.
Erfiðleikar fólks eru því á vissan hátt ákveðið
samfélagsmein þegar á heildina er litið.
Kröfurnar koma alls staðar að, frá skólanum,
frá íþróttafélögum, vinnustaðnum, heimilinu
og þannig mætti telja. Samfélagið hefur í
áranna rást breyst töluvert að þessu leyti,
kröfurnar hafa aukist, bæði efnislega og
félagslega. Þetta gengur þvert á þá hópa
sem leita eftir þjónustu hjá VIRK. Skiptir ekki
máli þótt fólk hafi hærri laun, það bara ætlar
sér meira. Fleiri utanlandsferðir og dýrari
föt. Í raun má segja að fólk þurfi almennt
að ná ákveðnu jafnvægi og skilja hvað er
nauðsynlegast að einbeita sér að.“
Hjálpar þú fólki að finna þetta út?
„Já. Ég ræði við fólk á þessum nótum. Þá
kemur oft í ljós að það eru tiltölulega fáir
Fólkið vill ná bata
– líða betur og er
tilbúið til að horfast í
augu við stöðuna
eins og hún er og
gera eitthvað til
þess að laga hana.
20 21virk.is virk.is