Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Qupperneq 11

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2023, Qupperneq 11
 VIÐTAL FALLEGT AÐ HORFA Á FÓLK GRÍPA TÆKIFÆRIÐ EDDA SIF SÆVARSDÓTTIR sérfræðingur hjá VIRK VIÐ HITTUM EDDU SIF SÆVARSDÓTTUR FYRIR Í BJÖRTUM OG LITFÖGRUM HÚSAKYNNUM VIRK VIÐ BORGARTÚN ÞAR SEM HÚN STARFAR MEÐAL ANNARS SEM RÁÐGJAFI. Ég réði mig fyrst til VIRK sem svokallaður „hlaupandi ráðgjafi“. Það var rétt áður en farsóttin Covid19 skall á. Starfsemin breyttist við þær erfiðu aðstæður, mitt hlutverk var þá að fara þangað sem mín var þörf hjá hinum ýmsu stéttarfélögum til þess að stytta biðlista sem höfðu myndast. Ég hef starfað í rösk fjögur ár hjá VIRK, nú sem ráðgjafi hér í Borgartúni,“ segir Edda Sif Sævarsdóttir og brosir. Nærvera hennar er hlý en um leið athugul. Spurð um menntun svarar hún: „Ég fór í félagsfræði í Háskóla Íslands – það var á þeim tíma sem fólk blaðaði í bókum til að leita upplýsinga og læra um samfélagið. Eftir BA-nám sinnti ég ýmsum störfum en tók svo meistarapróf í náms- og starfsráðgjöf. Í því námi er lögð áhersla á að hlusta og spegla það sem fólk er að segja. Að spegla er að endursegja með öðrum orðum frásögn einstaklings þannig að ljóst sé að enginn misskilningur sé í gangi. Það er mikilvægt að hlusta og skilja rétt það sem sagt er.“ Lærðir þú eitthvað um líkamstjáningu í þínu námi? „Já en einkum út frá viðtalstækni, til dæmis hvernig við sem ráðgjafar ættum að koma fram. Líkamstjáning er mikilvægt tæki. Þegar þjónustuþegar VIRK koma til mín í upphafi er hægt að lesa töluvert í líkams- tjáningu þeirra. Atriði eins og hvernig fólk situr og hvort það er með úlpuna rennda upp í háls segja sitt. Í þriðja eða fjórða viðtali skilur það kannski svo úlpuna eftir á öðrum stól – þá er það orðið öruggara með sig. Að halda fast um úlpu og trefil sýnir að fólk er í vörn. Líkamstjáning er í raun partur af hinni virku hlustun. Þegar ég var ráðin til VIRK höfðu myndast biðlistar, því kom upp þessi hugmynd hjá VIRK að búa til stöðu svokallaðs „hlaupandi ráðgjafa“. Markmiðið var að stytta biðlistann. Í stað þess að ráða fleiri ráðgjafa inn hjá stéttarfélögunum var ég ráðin í það starf. Ég fór þá á viðkomandi stað og var með fólk í ráðgjöf í húsnæði hinna ýmsu stéttarfélaga.“ Reyni að mæta fólki þar sem það er statt Fannstu mun á einstaklingum eftir því í hvaða stéttarfélagi það var? „Það skiptir í raun engu máli hvaða menntun þú hefur eða hvaða starfi þú sinnir, allir geta fengið bakslag – veikindi, slys eða kulnun. En maður horfir ekkert á það hvaðan fólk kemur heldur hvernig það er á sig komið – reynir að mæta fólkinu þar sem það er statt. Kulnun er talsvert í umræðu hjá fjölmiðlum en er ekki algengasta ástæða þess að fólk sækir um í starfsendurhæfingu. Gögn VIRK sýna að fólk með kulnunareinkenni er ekki stærsti hópurinn sem til okkar leitar – en talsverður partur þó, klárlega.“ Hvernig áttar ráðgjafi sig á hvað er í rauninni að í hverju tilviki? „Tilvísun frá heimilislækni er forsenda þess að fólk sé tekið í þjónustu hjá VIRK. Fyrir hendi eru því klínískar greiningar læknisins sem maður getur í upphafi byggt á og spurningarlistar sem einstaklingar svara í upphafi á Mínar síður VIRK. Þessar grunnupplýsingar liggja fyrir er fólk kemur til ráðgjafa – aðrar upplýsingar þarf hann að fá frá einstaklingunum sjálfum. Þær koma ekki endilega fram á fyrri stigum, geta verið viðkvæmar og erfiðar frásagnar. Stundum er um að ræða lífsreynslu sem fólk taldi sig vera búið að vinna úr og vill gleyma – en svo gerist eitthvað sem rífur sárið upp. Til að samstarfið á milli ráðgjafa og þjónustuþega VIRK verði gott þarf helst að myndast trúnaðarsamband. Yfirleitt gengur þetta vel því flestir sem koma í endur- hæfingu hjá VIRK sækjast eftir þessari þjónustu. Fólkið vill ná bata – líða betur og er tilbúið til að horfast í augu við stöðuna eins og hún er og gera eitthvað til þess að laga hana. Fólk er þakklátt að fá þjónustu hjá VIRK og vill sækja þau úrræði sem því stendur til boða. Eftir svona fjögur skipti er maður kominn með nokkuð góða mynd af því sem að er.“ VIRK er fyrst og fremst starfsendurhæfing Er snemma byrjað að leggja línurnar hvað gera eigi? „Ýmislegt kemur strax í ljós. Til dæmis ef um stoðkerfisvanda er að ræða. Þá er vísað á sjúkraþjálfara. Eða ef mikil streita er í lífi einstaklings, þá er að finna steitunámskeið sem hentar. En flóknari vandamál koma kannski síðar upp á yfirborðið og þá úrræði gagnvart þeim. VIRK er fyrst og fremst starfsendurhæfing. Markmiðið er að fólk komist aftur inn á vinnumarkaðinn. Stundum stefnir fólk á nám til að komast í vinnu síðar eða þá í einhvers konar virkni í samfélaginu. Fyrsta markmiðið er svokallað þátttökumarkmið, sem beinist að því að komast út á vinnumarkaðinn. Ekki er þá endilega stefnt að hundrað prósent vinnu því slíkt er ekki raunhæft fyrir alla. Sumir geta ekki sinnt nema takmörkuðu starfshlutfalli eða jafnvel vilja það ekki. Þegar til okkar leitar einstaklingur með enga vinnugetu en kemst svo kannski í sextíu prósent starfshlutfall þá er það mikill árangur.“ Hverjir eru helstu erfiðleikarnir sem þér sýnist að fólk eigi við að stríða sem til ykkar leita? „Fólk ætlar sér gjarnan of mikið. Ætlar að standa sig svo óskaplega vel í öllu sem það tekur sér fyrir hendur en sýnir sjálfu sér of litla mildi og samkennd. Það vill klífa metorðastigann í vinnunni, samhliða því að klífa fjöll fjórum sinnum í viku, vera í matarklúbbi og sinna heimili, börnum og öldruðum foreldrum frábærlega. Það vill sinna öllu á fullkominn hátt í starfi og einkalífi en jafnframt missa ekki af neinu í „sósíallífinu“. Segja má að það sé ofurkrafa á fólk að vera alls staðar og gera allt mjög vel.“ Er þetta stéttskipt krafa? Nei, mér finnst þessi krafa óháð því hvar í stétt fólk stendur. Líka er áberandi hvað fólk á erfitt með að segja nei. Þetta virðist vera landlægt á Íslandi og vera hvorki tengt stéttum eða aldri. Þetta, að gera aðeins meira en maður getur. Á þessum hraðakstri verður fólk yfirkeyrt. Erfiðast er oft að fá fólk til þess að stíga aðeins út úr þessum hugsunarhætti, skilja að það skiptir ekki meginmáli þótt óhreint leirtau sé í vaskinum eða krakkarnir geti ekki farið í sömu peysunni í skólann sem þeir voru í daginn áður. Oft skiptir meira máli að fólk leggist upp í sófa og hvíli sig heldur en að það taki fram skúringafötuna eða ryksuguna. Sam- félagsmiðlar virðast eiga þarna nokkurn hlut að máli. Þótt margt sé þar jákvætt þá dregur fólk gjarnan upp glansmynd af tilveru sinni og aðstæðum og gefur þannig upp ranga mynd af stöðu sinni. En það vita ekki hinir og máta sig við glansmyndina. Fólk er þó að verða meðvitaðra um þetta en áður var. Þetta er á vissan hátt sorglegt því flestir eru í raun að gera sitt besta. Það ætti að vera nóg. Erfiðleikar fólks eru því á vissan hátt ákveðið samfélagsmein þegar á heildina er litið. Kröfurnar koma alls staðar að, frá skólanum, frá íþróttafélögum, vinnustaðnum, heimilinu og þannig mætti telja. Samfélagið hefur í áranna rást breyst töluvert að þessu leyti, kröfurnar hafa aukist, bæði efnislega og félagslega. Þetta gengur þvert á þá hópa sem leita eftir þjónustu hjá VIRK. Skiptir ekki máli þótt fólk hafi hærri laun, það bara ætlar sér meira. Fleiri utanlandsferðir og dýrari föt. Í raun má segja að fólk þurfi almennt að ná ákveðnu jafnvægi og skilja hvað er nauðsynlegast að einbeita sér að.“ Hjálpar þú fólki að finna þetta út? „Já. Ég ræði við fólk á þessum nótum. Þá kemur oft í ljós að það eru tiltölulega fáir Fólkið vill ná bata – líða betur og er tilbúið til að horfast í augu við stöðuna eins og hún er og gera eitthvað til þess að laga hana. 20 21virk.is virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.