Úrval - 01.04.1973, Side 44
42
ÚRVAL
AHRIF AFENGIS
ÁHVÍTU
BLÓÐKORNIN
Rannsóknir sýna, hvernig
áfengið drepur hvitu blóð-
kornin, verndara okkar
gegn sýkingu.
Ileilsuvernd.
F'l anski læknirinn og visinda-
' maðurinn Mikkel Hindhede, sem
varð kunnur fyrir manneldis-
rannsóknir sinar á fyrstu áratugum 20.
aldar, starfaði á yngri árum sem
héraðslæknir á Jótlandi. t þann tiö var
áfengi notað sem læknislyf, m.a. i
sjúkdómum eins og lungnabólgu, og
var talið styrkjandi i hæfilegum
skömmtum.Hindhede segir frá þvi i
einni af bókum slnum, að einhver
sjúklingur hans var þungt haldinn af
lungnabólgu og aöstandendur hans
heimtuðu, að honum væri gefið áfengi,
eins og venja var. Hindhede áleit
áfengið veikja viðnámsþrótt likamans
og fór sinu fram, enda þótt hann væri
milli vonar og ótta um afdrif
sjúklingsins og gengi þess ekki dulinn,
hvaða áhrif það mundi hafa á orðstir
hans sem læknis, ef sjúklingurinn dæi.
Sem betur fór, lifði hann og náði fullri
heilsu. Nú er áfengi að heita má úr
sögunni sem læknislyf, þótt það sé
notað I sumar lyfjablöndur til að halda
uppleystum vissum efnum, sem ekki
eru uppleysanleg i vatni. Af þessum
mixtúrum tekur sjúklingurinn ekki
nema nokkur grömm á dag, minna en
svo, að áfengið hafi nokkur veiklandi
áhrif á lfkamann.
Menn hefir lengi grunað, að þeim
sem neyta mikils áfengis, sé öðrum
fremur hætt við bakteriusjúkdómum i
lungum. Og dýratilraunir gerðar 1930
bentu til þess, að áfengisneyzla hefið
lamandi áhrif á viðgang hvitra blóð-
korna. En hvitu blóðkornin eru einmitt
varnarlið likamans gegn sýklum, svo
sem kunnugt er.
1 læknaritinu Triangle.sem gefið er
út af svissnesku lyfjafyrirtæki, birtist
nýlega grein eftir ameriskan
prófessor um rannsóknir gerðar i til-
raunastofnun i Bandarikjunum, bæði á
dýrum og mönnum:
1. Undir húð á músum var dælt
hálfum millilitra af 30% alkóhóli, og