Úrval - 01.04.1973, Side 77
75
VIDSKIPTI
BANDARÍKJANNA
OG SOVÉTRÍKJANNA
Frjáls verzlun
Samuel Pisar er kunnur
lögfræðingur á alþjóölegum
vettvangi og einnig sem ráðgjafi
stórfyrirtækja og banka. Hann átti
sæti i forsetanefnd, sem fjallaði um
stefnu Bandarikjanna f utanrfkis-
verzlun, og var ráðgjafi Nixons forseta
f bandariska Alþjóðaverzlunar- og
fjárfestingarráðinu. — Fyrir skömmu
birtist við hann eftirfarandi viðtal f
vikuritinu U.S. News and World
Report. Er þar fjallað um viðskipta-
sambönd Bandarikjanna og Sovét-
rikjanna.
Búizt þér við mikilli aukningu i við-
skiptum Sovétrikjanna og Banda-
rlkjanna næstu 5 árin?
— Ég tel, aö það verði umfangsmikil
aukning í viöskiptunum. Ég spái þvi,
að f lok þessa fimm ára tlmabils verði
viðskiptin komin upp i 2, eða jafnvel 5
milljarða dollara á ári á báða bóga,
þ.e.a.s. ef við tökum með i reikninginn
sameiginlegar framkvæmdir sovézkra
og bandariskra aðila. Inn- og
útflutningur getur hækkað á tima-
bilinu úr 200 milljónum dollara, eða
þar um bil, f mörgum sinnum þessa
upphæð, en von okkar er bundin við
viðskipti, sem marka timamót.
Hafa ber I huga, að hin niu riki
Efnahagsbandalags Evrópu hafa 25
sinnum meiri viðskipti viö Sovétrikin
og A-Evrópu, en Bandarikin við
sömu aðila. Ég sé enga ástæðu til þess
að Bandarikin geti ekki aukið viðskipti
sin við Sovétrikin tiu sinnum, eftir að
höftum og misrétti kalda striðsins er
rutt úr vegi. ,
— Hvað veldur þessum skyndilega
áhuga I báðum rikjunum á að auka
viðskiptin?
— Sovétrikin hafa tekiö upp þá
stefnu aö byggja upp neytenda-
þjóöfélag og þeim liggur mikið á.
Landsmenn leggja hart að stjórn-
völdunum á þéssu sviöi. Ég hef lika
veitt þvl athygli, að þeir ætla sér að
flýta uppbyggingu Siberiu eins mikið
og þeir hugsanlega geta, vegna
sambúðarvandamáls þeirra viö
Kinverja, sem eru nágrannar þeirra á
þessum slóðum. Þeir eru mjög
framarlega á mörgum sviðum
tækninnar, eins og t.d. I varnarmálum