Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Qupperneq 3

Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Qupperneq 3
Það er furðulegt og þannig langt í frá hversdagslegt, að jólunum fylgir sú einstaka til­ finning í mínum huga að allur heimurinn gangi í takt. Ég var orðinn nokkuð gamall þegar ég álpaðist einusinni á jóladag eftir mjólk eða rjóma, í bensín­ sjoppu í Reykjavík sem hafði eitthvert sérleyfi fyrir því að hafa opið. Maður getur þreifað á svona tilfinningum í hjartanu þó langt sé um liðið. Allavega ég. Og þetta voru dapurleg vonbrigði; ekki yfir því að geta keypt mjólkina heldur því að þarna var bílastæðið krökkt af unglingum og biðröðin enda­ laus. Þau voru ekki að sækja neinar nauðsynjar – virtust ekki einusinni hafa mælt sér mót – heldur leiddist þeim bara. Þau voru sum hver að sækja sér nammi og snakk, en mest sýndist mér renna út af pizzusneiðum. Endalaust ef andlitum og hlátrasköllum sem sögðu – í mínum huga – þá sögu að fólki fyndist allir dagar mega vera eins, gæti ekki gert málamiðlanir, vildi alls ekki reyna á sig. Á þessum tíma­ punkti hafði ég prufað allskyns jól, að eigin mati. Í útlöndum við aðra siði, í annarri menn­ ingu, þar sem „hug mynd inni um hin heilögu jól“ var storkað, já beggja vegna Atlants ála hafði ég upplifað jól, einn míns liðs, með kunningjum, með vinum. Og þá stuðar það mann ekki að fólk nálgist hlutina öðruvísi. En þessi sjoppuferð þarna fannst mér ósköp dapurleg. Af því að það er svo einstakt að allavega einn dag á ári, virðist heilt samfélag – háir og lágir – ganga í takt. Það er áþreifanleiki hug­ myndar innar um að við séum öll eitt. Það kemur menningar­ lega samhenginu ekkert við, heldur því að þegar það er „orðið heilagt“ – á aðfanga­ dags kvöld, þá tökum við öll þátt í því heilaga. Það er ríki friðar ins. Og kapphlaupinu eftir als nægtunum er lokið um stund; allt verður bara eins og það á að verða. Það er mín afstaða. Að finna að jólunum Það þarf ekki að horfa fram hjá því að það mörgum líður illa á jólunum, miklu fleirum en við vildum – og þá er ég samt bara að tala um í okkar litla samfélagi, hér á vestanverðu Snæfellsnesinu og á Íslandi. En flest njótum við þess þó að fá að ganga í takt. Tilheyra helginni sem afmarkar jólin frá öllum öðrum tíma. Í eina tíð fylgdu jólum fjölskyldusamverur sem skiptu öllu máli, í því var helgidómur jólanna falin; nándin og fjarlægðirnar eru afstæðari í dag. Eins getum við aldrei borið saman það sem fólk veitir sér í dag og hvað þótti munaður áður. Það er til einskis að barma sér yfir slíkri þróun, ástæðulaust að taka því með þótta að fólk fari fram úr því sem okkur sjálfum þykir hóflegt. Það þarf ekki að dæma aðra, segja neysluna óásættan­ lega útaf græðginni, setja mælikvarða á hvað sé óhóf eða fullyrða eitthvað um spillingu og brenglað verðmætamat, til þess að hefja sjálfan sig yfir einhverja firringu sem maður skynjar hjá öðrum. Við eigum nóg með okkur sjálf og það að ganga í takt við eigin tilfinningar fyrir jólunum. Og eins og aðrir ættu að eiga frí frá dómum okkar um þeirra siði; þá er óskandi að við sem leggjum mikla merkingu í helgi jólanna fáum frið fyrir þeim postulum Tilfinningin fyrir jólunum

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.