Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Blaðsíða 12
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti og spil.
Þetta erindi úr ljóði eftir
Jóhannes úr Kötlum, kemur
alltaf upp í huga Margrétar Vig
fús dóttur þegar líða fer að
jólum. Margrét er búsett í Ólafs
vík ásamt eiginmanni sínum Jóni
Eggerts syni. Finnst henni að
ljóðið segi svo margt um þennan
árstíma, sem henni finnst svo
skemmti legur. Margrét rifjar upp
jólin þegar hún var að alast upp
og fór svo síðar að búa, gefum
Margréti orðið.
„Ég er fædd 1949 og ólst upp
í Hlíðarholti í Staðarsveit og á
því láni að fagna að eiga góðar
minningar um jólin. Foreldrar
mínir voru þau Kristjana Elísabet
Sigurðardóttir og Vigfús Þráinn
Bjarnason sem alla tíð bjuggu í
Hlíðarholti. Ég á þrjá bræður,
einn eldri en ég og tvo yngri.
Undirbúningur var hefð
bundin og hófst í desember, en
ef laust hefur mamma verið farin
að sauma og prjóna á okkur
systkinin fyrr. Bakaðar voru smá
kökur, ég man aðallega eftir
hálfmánum, gyðingakökum og
vanillu hringjum, svo var vínar
terta, formkökur og kleinur.
Mamma bakaði líka stundum
kramar hús sem voru svo fyllt
með rjóma, þau þóttu mér flott.
Allt var þrifið hátt og lágt. Jóla
tréð, sem var heimasmíðað af
föður mínum, þótti okkur syst
kinunum það alltaf jafn flott
þegar búið var að skreyta það.
En það þurfti að hafa svolítið
fyrir því. Við þurftum að fara
suður í „Köst“ sem svo eru
kölluð og sækja þangað sortu
lyng sem sett var á arma jóla
trésins, ég held samt að það hafi
ekki verið alltaf gert, stundum
var bara sett bómull og síðan
voru lifandi kerti á hverjum
armi. Stofan var skreytt með
marg litu pappírsskrauti sem var
hengt horna á milli. Eftir að
mamma og pabbi voru búin að
skreyta á þorláksmessu var
stofunni læst og ekki opnað fyrr
en á aðfangadagskvöld.
Matur um jólin var hefð
bundinn, kindakjöt á aðfangadag
og hangikjöt á jóladag og
sveskju grautur með rjóma á
eftir. Á aðfangadag var hlustað á
messu í útvarpinu klukkan sex
og farið í fjós að mjólka, áður en
farið var að borða. Eftir matinn
var svo gengið í kringum jólatréð
og sungin nokkur jólalög. Síðan
var farið að opna pakkana, sem
okkur krökkunum fannst mjög
spennandi. Ýmislegt fallegt kom
úr þeim, sem við vorum mjög
Heimasmíðað jólatré með sortulyngi
588 4477
Allir þurfa þak yfir höfuðið
R e y k j a v í k – S n æ f e l l s b æ – H ö f n H o r n a f i r ð i | S í m i 5 8 8 4 4 7 7 | w w w. v a l h o l l . i s
Heiðar
Friðjónsson
Sölustjóri
Löggiltur
fasteignasali B.Sc
693 3356
Ingólfur Geir
Gissurarson
Framkvæmdastjóri
Lögg.fasteignasali og
leigumiðlari
896 5222
Margrét
Sigurgeirsdóttir
Skrifstofustjóri
margret@valholl.is
588 4477
Pétur Steinar
Jóhannsson
Aðstoðarm.
fasteignasala
Snæfellsnesi
893 4718
Sturla
Pétursson
Löggiltur
fasteignasali
899 9083
Snorri
Snorrason
Löggiltur
fasteignasali
Útibú
895-2115
Anna F.
Gunnarsdóttir
Löggiltur
fasteignasali
892-8778
Herdís Valb.
Hölludóttir
Lögfræðingur
og lögg.fasteignasali
694 6166
S í ð a n 1 9 9 5
Nútímaleg, kraftmikil og framsækin fasteigna sala sem byggir á áratuga reynslu starfsmanna!
Fagleg þjónusta -
Vönduð vinnubrögð
Úlfar Freyr
Jóhansson
Lögfræðingur Hdl.
Lögg. fasteignasali.
Skjalavinnsla
692 6906
Óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla og nýárs.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Störf í boði
Fiskmarkaður Íslands leitar að fólki til vertíðarstarfa
í okkunar- og slægingarstöð Ri.
Um ræðir vertíðarvinnu frá 15. janúar til 31. maí. Mikil vinna í boði.
Einnig leitum við af vönum lyftaramanni í heils árs starf á sömu starfsstöð.
Fyrir áhugasama hað samband við:
Reynir Guðjónsson, reynirg@fmis.is, 840-3725 eða
Smára Björgvinsson, smari@fmis.is, 840-3715
Jón Eggertsson og Margrét Vigfúsdóttir
Hlíðarholt í Staðarsveit, æskuheimili Margrétar.