Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Blaðsíða 24

Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Blaðsíða 24
ákveðinn fjöldi og það var víst alveg skelfilegt ef sá fjöldi náðist ekki. Ég heyrði af fólki sem ekki náði þessu og það var svo slæmt að fullorðna fólkið þurfti að hvísla um það. En allar voru þessar kökur góðar. Þegar þær voru allar tilbúnar var komið að laufabrauðinu. En það var mjög skemmtileg athöfn þá kom saman hópur fólks heima og yfirleitt var setið heilan dag við að skera út og steikja , það var mikil stemning, mikið skrafað og hlegið. Í þessu samhengi minnist ég þess að mömmu fannst ég alltaf gera fallegasta laufabrauð dagsins, hún sagði mér það meira að segja sjálf. Eftir að við systkinin urðum fullorðin þá sagði Sigga stórasystir (hún er 18 mánuðum eldri en ég) mér að mamma hafi sagt það sama við hana, Já mamma, hún kunni sko lagið á henni Siggu, Ég held að Sigga trúi þessu enn. Þegar laufabrauðið var til­ búið var komið að jóla hrein­ gerningu, jólahrein gerning er það sama og að “taka í gegn” nema á sterum. Það var sko engin smá fram kvæmd! Ég sá reyndar aldrei neitt sem tók því fram fyrr en fram kvæmdir hófust við Borgar fjarðarbrúna sem var á seinna æviskeiði mínu. Það þurfti að ryksuga, og skúra (ekki bara gólfin heldur bæði loft og veggi líka). Allir skápar og skúffur voru tæmd og þvegið að innan og sett í þá aftur. Hluti af þeirri framkvæmd var að skipta um vaxpappír í eldhússkápunum, ég skil ekki enn þann dag í dag hversvegna, en þetta þurfti bara að gera, líklega voru þetta lög svipað og með smákökusortirnar. Gluggar voru þvegnir og húsgögn bónuð. Þurrkað af styttum og vösum, baðherbergið þrifið í rot og meira að segja tók pabbi aðeins til í bílskúrnum. þegar þessum þrifum linnti þurfti að þrífa aðeins meira því enn voru nokkrir dagar til jóla og það þurfti að halda þrifunum við. En á endanum var komin þorláksmessa og þá fóru allir niður í bæ í búðarráp ég fór að sjálfsögðu með og keypti jólagjafir með hjálp eldri systkina minna og mömmu og pabba þetta var alltaf mjög hátíðlegt enda logn og nýfallinn snjór eins og ég sagði áðan. . Þegar heim var komið að kvöldi Þorláksmessu var jólatréð sett upp og það skreytt. Einnig var sett upp allskonar annað skraut, heimagerðir músastigar og óróar og fullt af öðru. Jóla­ sveinar gluggaseríur, allskonar stjörnur o.fl. Svo fór maður að sofa eða að minnsta kosti reyndi maður það, Ég segi “reyndi” vegna þess að spenningurinn var yfirleitt svo mikill að það tókst oftast ekki fyrr en eftir dúk og disk. En á aðfangadag vaknaði maður samt alltaf bísperrtur og rauk út í glugga til að gá í skóinn, því að þenn dag var alltaf von á einhverju extra miklu í hann, ég hef ekki minnst á skóinn úti glugganum fyrr. En að sjálfsögðu settum við systkinin alltaf skóinn út í gluggann og fengum alltaf eitthvað frá jólasveininum. Ég man bara eftir að hafa fengið kartöflu einu sinni og Sigga systir líka, sem mér fannst reyndar mjög óréttlátt því hún átti skilið að fá mun oftar. En líklega gátu jólasveinarnir bara ekki fylgst alveg fullkomlega með öllum og svo voru þeir víst Kæru ættingjar og vinir Guð gefi ykkur gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár. Þakka vináttu og hlýhug á liðnu ári. Guðrún Alexandersdóttir Þorláksmessa lokað Aðfangadagur lokað Jóladagur lokað Annar í jólum lokað 27/12 - 28/12 kl. 7:30 - 15:00 Gamlársdagur lokað Nýársdagur lokað BALATÁ Sendum viðskiptavinum okkar og Snæfellingum öllum bestu jóla og nýárskveðjur.

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.