Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Page 4

Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Page 4
sem sífellt prédika um það hvað jólin séu nú mikið húmbúkk og hræsni. Þeim sem í hroka sínum halda því á lofti að þetta snúist allt um einhverja yfirnáttúrulega afmælisveislu fyrir einstakling sem þeim sé sama hvort var til eða ekki. Það að hafa tilfinningu fyrir hinu heilaga á jólunum snýst nefnilega um okkur sjálf og því að vera í tengslum við okkur sjálf og þau hin í kring. Helg stund snýst um minningar og merkingu. Það sem er í okkur öllum og því um leið það sem við eigum sameiginlegt; hvort sem við erum kristin eða skilgreinum okkur öðruvísi, það sem er saklaust, varnarlaust og óflekkað í okkur öllum. Þar sem er enginn ótti og engin skömm. Við þurfum öll svoleiðis pláss, ekki bara í hjartanu, heldur í mannlegum sam skiptum líka. Þess rýmis eigum við öll að geta notið í kirkjunum okkar og kærleiks­ ríkum tengslum við náungann. Því um það snýst það að ganga í takt. Og með þeim óskum vil ég óska ykkur öllum friðar og gleði á jólum og um áramót. Að lokum – til handa heiðingjunum! Skáldið Steinn Steinarr var kaldhæðinn og kunni að snúa útúr, en um leið hafði hann sterka trúartilfinningu, þar sem rétt lætið og sannleikurinn skipti meira máli en helgislepja eða upp hafin orð um alvaldan Guð. Hann orti eitt sinn ljóð sem byrjar svona: „Sjá, ennþá nálgast sú hátíð, sem hjartanu er skyldust. Og huggar með fagnaðarsöngvum hvert angur manns. Og innan skamms byrjar kappát í koti og höllu, og klukknahringing og messur og bænargjörð,“ Hjá Steini harðnar tóninn og ljóðmælandinn fer á fulla ferð í að formæla þessu öllu – ekki eins og ég bensínsjoppunni og pizzusneiðaátinu á jóladag um síðustu aldamót ­ heldur ein­ mitt hvað hið trúarlega sé asna­ legt og hið heilaga yfirgengilegt, í samfloti með kapítalismanum; hann yrkir áfram: “það er kannski heimskast og andstyggilegast af öllu, sem upp var fundið á þessari voluðu jörð.“ Það er því við hæfi að enda þetta á orðsendingu til þeirra sem hafa allt á hornum sér og sjá því allt til foráttu að þetta jólastúss sé útúrdúr á alvaldi hvers daganna eða finnst að endur vekja eigi svallveislur heiðn innar, því það sé íslensk­ ara. Hér er því ára mótagjöf úr bók mennta arfinum, heilræði ykkur til handa, sem vonandi færir bros á vör. “Og ger þú nú snjallræði nokkurt, svo fólkið finni í fordæmi þínu hygginn og slótt­ ugan mann: Með kurteisum svip skaltu kveikja í stofunni þinni. Og kauptu svo sóknarprestinn og éttu hann.“ (Steinn Steinarr) Gleðilegt nýtt ár! Arnaldur Máni Finnsson - Staðastað Tekið verður á móti pökkum í Björgunarstöðinni Von Hafnargötu 1, Ri sunnudaginn 23. des. á milli kl. 20-22. Herramennirnir heast svo handa við að heimsækja börnin um leið og happdrættinu í Kli lýkur á aðfangadag. Fyrsti pakki kostar 1.500 kr og hver pakki eftir það 500 kr. Gleðileg Jól

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.