Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Blaðsíða 16
Deloitte óskar þér
og fjölskyldu þinni
gleðilegrar hátíðar
og þakkar samskiptin
á árinu sem er að líða.
Líkt og undanfarin ár mun Deloitte ekki senda jólakort til viðskiptavina en þess í stað láta andvirði jólakortanna
renna til góðs málefnis. Í ár rennur styrkurinn til Stígamóta. Stígamót eru grasrótarsamtök sem berjast gegn
kynferðisofbeldi og veita aðstoð fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi.
Hvorki höfundar né gestir
létu leiðinlegt hvassviðri og
rigningu á sig fá og skelltu sér á
Bóka veisluna í Klifi mánu dags
kvöldið 10. des ember. Bóka
veislan er einn af stóru við
burðum aðventunnar í Snæ
fells bæ og undanfarin ár hafa
nem endur 10. bekkjar Grunn
skóla Snæfellsbæjar haft veg og
vanda af henni ásamt kennurum
sínum og foreldrum.
Áður en hin eiginlega Bóka
veisla hófst höfðu nemendur
ásamt kennurum sínum tekið á
móti höfundunum í skólanum
og borðað en höfundarnir sem
komu að þessu sinni voru
Auður Ava Ólafsdóttir, Einar
Kárason, Hallgrímur Helgason,
Yrsa Sigurðardóttir og Þor
grímur Þráinsson. Nemendur
höfðu útbúið kynningar á
höfundunum sem þau fluttu
áður en þau lásu úr bókum
sínum. Voru kynningarnar mjög
skemmtilegar og höfðu nem
endur sent spurningar á
höfundana og unnið þær upp
úr svörum þeirra ásamt fleiru.
Bækurnar sem lesið var úr
voru mjög áhugaverðar og
gaman að hlusta á höfundana
lesa úr verkum sínum. Náðu
þeir oft á tíðum að hrífa
áheyrendur með sér með
áhrifa miklum lestri. Nemendur
seldu svo kaffi og tertusneið í
hléi og rann ágóðinn af sölunni
í ferðasjóð þeirra. Þegar allir
höfundar höfðu lokið við að
lesa upp úr bókum sínum
færðu 10. bekkingar höfundum
þakklætisvott áður en tekin var
hópmynd af nemendum og
höfundum. Höfundar gáfu sér
svo tíma til að árita bækur sínar
áður en þeir lögðu af stað aftur
heimleiðis.
þa
Lesið upp úr bókum í Bókaveislu
Sendi öllum ættingjum og vinum
mínar bestu jóla- og nýársóskir
með þökk fyrir það liðna.
Kær kveðja
Bjarni Ólafsson, Geirakoti