Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Page 31
Laugardaginn 15. des braut
skráðust sex nemendur frá Fjöl
brauta skóla Snæfellinga. Af
félags og hugvísindabraut
braut skráðust Anna Lilja
Ás bjarnar dóttir, Eva Laxmi
Davíðs dóttir og Jakob Breki
Inga son. Af náttúru og raun
vísinda braut brautskráðist
Laura María Jacunska og af
opinni braut til stúdentsbrautar
braut skráðust Ágúst Nils Einars
son Strand og Þorbjörg Erna
Snorra dóttir sem sá sér ekki
fært um að vera viðstödd
athöfnina.
Athöfnin hófst á því að Hrafn
hildur Hallvarðsdóttir skóla
meistari Fjölbrautaskóla Snæ
fell inga brautskráði nemendur
og flutti ávarp. Sólrún Guð jóns
dóttir aðstoðarskólameistari
afhenti síðan nemendum viður
kenningar fyrir góðan náms
árangur. Sveitarfélögin sem
standa að skólanum gáfu
viðurkenningar í formi bóka
gjafa ásamt Landsbankanum.
Anna Lilja Ásbjarnardóttir
fékk viðurkenningu fyrir náms
árangur sinn í sálfræði og þýsku.
Jafnframt var hún með hæðstu
meðaleinkunn út skriftar nema
og hlaut hún peninga verð laun
frá Lands banka num og bókagjöf
frá sveita félögunum.
Eva Laxmi Davíðsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir náms
árangur sinn í kynjafræðum og
þýsku. Laura María Jacunska
fékk viðurkenningu fyrir náms
árangur sinn í dönsku og Þor
björg Erna Snorradóttir fékk
viður kenningu fyrir náms
árangur sinn í félagsfræðum.
Haukur Páll Kristinsson,
útskrifaður nemandi fékk til
liðs við sig félaga sinn Einar
Bergmann og sáu þeir um tón
listar atriði við athöfnina með
stakri prýði.
Hólmfríður Friðjónsdóttir
þýskukennari flutti kveðjuræðu
kennara og starfsfólks, Guðrún
Magnea Magnúsdóttir flutti
ræðu fyrir hönd 10 ára stúdenta
og Laura María Jacunska hélt
kveðjuræðu nýstúdenta.
Að lokum sleit skólameistari
skólanum í 15 sinn og bauð
stúdentum og gestum í kaffi og
kökur.
Útskrift Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Sendum starfsfólki okkar
og öllum íbúum Snæfellsbæjar
okkar bestu óskir um
gleðileg jól og farsælt komandi ár.