Bæjarblaðið Jökull - 20.12.2018, Page 38
Jólatónleikar Tónlistarskóla
Snæfellsbæjar fóru fram í byrjun
desember. Fyrstu tónleikarnir í
Félagsheimilinu Klifi. Þar komu
fram nemendur sem búsettir eru
norðanmegin á nesinu. Vel var
mætt á tónleikana en þar komu
nemendur fram í hópum og
spiluðu og sungu. Stóðu
nemendur sig mjög vel að venju
og fluttu hvert jólalagið á fætur
öðru. Að tónleikunum loknum
stóð Foreldra og styrktarfélag
tónlistarskólans fyrir sölu á
kaffiveitingum sem gestir gátu
keypt sér á mjög viðráðanlegu
verði. Ágóðan notar félagið til að
styðja og styrkja við starf tón
listarskólans. Á fimmtu deginum
voru svo tónleikar hjá þeim
nemendum sem búa sunnan
megin á nesinu og voru þeir
haldnir í húsnæði Grunnskóla
Snæfellsbæjar á Lýsuhóli. Tókust
þeir einnig mjög vel og þarf ekki
að hafa áhyggjur af framtíðinni
þegar kemur að tónlistarfólki í
bæjarfélaginu. Á miðviku degi
num voru svo haldnir tón leikar
full orðinna nemenda í tón listar
skólanum. Voru þeir haldnir í
safnaðarheimili Ólafsvíkur kirkju.
Þar komu fullorðnir nemendur
tónlistarskólans fram og sungu
og spiluðu. Vel var mætt á þessa
tónleika einnig og ánægjulegt
hversu margir gáfu sér tíma til að
mæta á þessa flottu tónleika
tónlistarskólans. Greinilegt er að
þar fer fram metnaðarfullt starf
sem sést best á þessum flottu
tónleikum og því hversu margir
nemendur stunda nám við hann.
þa
Tónlistarskólinn með jólatónleika
Óskum Snæfellingum geðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Félag eldri borgara í Snæfellsbæ
óskar Snæfellsbæingum og öðrum velunnurum
gleðilegra jóla, árs og friðar.
Nýir félagar ætíð velkomnir.
Stjórnin.
LIONSKLÚBBURINN
RÁN
ÓLAFSVÍK
Stofndagur
5. apríl 1994
1987 - 1994
21. janúar 1973
Lionsklúbburinn
Rán, Ólafsvík
Lionsklúbbur
Ólafsvíkur
Óskum ættingjum og vinum nær og fjær
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarf á liðnum árum.
Kveðja,
Ómar og Kay