Varðberg - 08.01.1944, Blaðsíða 7

Varðberg - 08.01.1944, Blaðsíða 7
VARÐBERG 7 SIGURÐUR NORDAL: Hverju reiddust goðin? Hið háa Alþingi, sem virðist fara síhækkandi í hinni virðulegu einangr- un sinni frá þjóðinni, eftir því sem vegir þess verða almenningi órann- sakanlegri, hefur með sínu lagi svarað bréfi 14-menninganna, sem prentað er hér að framan. Vanþóknunin beindist einkum að Ríkisútvarpinu vegna þess, að bréfið var lesið þar í heyr- anda hljóði fyrir alla, sem vildu hlusta. Föstudaginn 10. des. s.l. svar- aði dómsmálaráðherra fyrirspurn um þetta „hneyksli“. í skýrslu ráðherr- ans segir, að í bréfinu sé farið „meið- andi og móðgandi ummælum um meiri hluta Alþingis og þann hluta þjóðarinnar, sem honum er fylgj- andi“. Réttur aðili (þ. e. útvarps- stjóri) hafi þegar lofað „að hafa gát á þessu framvegis, að ekki yrðu lesin upp meiðandi ummæli um þing og stjórn“. (Þjóðin virðist hafa gleymzt). Dómsmálaráðherra tók það fram, eins og hans var von og vísa, að hann teldi ekki aðfinnsluvert að birta það úr nefndu bréfi, „sem snerti sjálfa fréttina“. En hins vegar þótti ekki sæma að upp væru lesnir orðrétt kafl- arnir með hinum meiðandi og móðg- andi ummælum. (Heimild: Morgun- blaðið, 11. des.). Hver eru þessi ummæli? Hverju reiddust goðin á þingstöllunum? 1) í bréfinu var þess óskað, „að stofnun lýðveldisins verði hagað svo, að í engu sé vikið frá gerðum samn- ingum né drengilegri málsmeðferð“. — Um vik frá gerðum samningum ætti að vera nægilegt að vísa til urn- ræðna um málið, vanefndakenning- arinnar og ummælanna um 18. grein sambandslaganna í yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar 1. nóv. s. 1. 2) Drengileg málsmeðjerð (sbr. „drengskapartilfinning þjóðarinnar“ — seinna í bréfinu). Kunnugt er, að um tilfinningar er örðugt að deila. Þær eru mismunandi hjá einstakling- um og breytingum háðar. Annað höf- uðblað Sjálfstæðisflokksins (Morgun- blaðið) taldi t. d. 1940 ckki koma til mála að „nota sér neyð sambands- þjóðar vorrar" til þess að ganga frá sambandsslitum fyrr en ella mundi hafa verið gert. Hitt aðalblað sama flokks (Vísir) taldi nýlega sjálfsagt að nota sér þessa neyð, því að sú væri venja þjóða að grípa tækifærið, þegar „yfirþjóðin ætti við erfiðleika að etja“. Varla er von, að öll þjóðin né jafnvel meiri hluti hennar sé nógu hraðfara í andanum til þess að fylgj- ast jafnóðum með í slíkum hugarfars- breytingum, — eða skyldi Morgunbl. 1940 hafa átt við, að neyð Dana væri þá enn ekki orðin nógu mikil til þess að nota sér hana? — Þá skal nefnt' dæmi um „drengilega málsmeðferð“ innan lands. Þótt eg hlusti ekki nærri því alltaf á útvarp, hef eg í haust hlýtt á tvær ræður „um daginn og veginn“. Einhverjir allra gáfuðustu og mál- snjöllustu menn, hvor í sínum stjórn- málaflokki, Carl Tulinius úr Sjálf- stæðisflokknum og Gunnar Benedikts- son úr Sósíalistaflokknum, hafa þar óáreittir mælt fyrir hraðskilnaði. Carl muldi ekki undir ,,hina dönsku Is- lendinga“, sem andstæðir væru þess- ari aðferð. Mundi Alþingi hafa tekið því með þögn og þolinmæði, ef þessi liður útvarpsdagskrárinnar hefði ver- ið notaður svo af einhverjum andstæð- ingum meirihlutans? Eða má „móðga“ minni hluta þjóðarinnar í útvarpinu? 3) Sómatilfinningu manna má mis- bjóða með ýmsu móti. Sumir eru við- kvæmastir fyrir móðgunum utan frá. Ráðagerðir íslenzkra stjórnmála- manna hafa árin 1941 og 1942 bakað þjóðmni tvær áminningar tveggja stórvelda um að sjá sig um hönd í lýðveldismálinu. Báðum þessum á- minningum var hlýtt. Annaðhvart hafa Islendingar því orðið að viður- kenna, að þeir hafi ætlað að fremja rangindi, eða þeir hafa þolað þá sneypu að hvika frá réttum málstað af ótta og una við rangindi, — og eru báðir kostir illir. Séu þeir menn á með- al vor, sem svíður ekki undan þessu, er smekkur þeirra á þjóðarsóma væg- ast sagt undárlegur. — Aðrir hugsa meir um flekkleysi eigin breytni en móðganir annarra. Þeirri tilfinningu lýsti núverandi forsætisráðherra ágæt- lega í ræðu sinni 1. des. 1942: „Sjálf- stæðið höfum vér öðlázt á grundvelli laga og réttar, og því aðeins getum vér orðið hlutgengur aðili í samfélagi þjóðanna, að enginn skuggi fatti á mannorð vort í þessu efni, þar meg- urn vér aldrei tefla á tæpasta vaðið“. 4) Að vísu voru áminningarnar komnar fram, þegar þessi orð voru mælt. En eg vil samt fullyrða, að þau lýsi réttarvitund þeirri, sem þjóðinni hefur verið innrætt og eg vona, að enn sé almenn og vakandi. — Upp á síð- kastið hefur verið bent á, að Danir geti ekki talið sér misboðið, þótt sam- bandslögin séu skoðuð „eins og hver annar pappírssnepill“ (svo sem kveð- ið var að orði 1914 um samning nokk- urn), — af því að sambandið færi þeirn „enga hagsmuni“. En — í fyrsta lagi má mæla réttlæti á annan mæii- kvarða en hagsmuni, og í öðru lagi er íslendingum skylt að hugsa meir um, hvað þeir telja sjálfum sér sam- boðið en í hverju Danir telja sér mis- boðið, þótt drengilegra sé að særa ekki heldur réttarvitund þeirra, sízt eins og nú stendur á. Líklega er núverandi alþingismönn- um íslendinga ekki alveg ókunnugt urn, að þessi dýrmætasta stofnun þjóð- arinnar, með sögu sína og framtíðar- vonir, hefur verið meidd og móðguð á ýmsan freklegri hátt en með bréfi 14-menninganna og birtingu þess í útvarpinu, án þess að þeir hafi gert viðeigandi ráðstafanir. Þetta vekur ónotalegan grun um, að gremja Al- þingis yfir lestri bréfsins í útvarpinu hafi ekki fyrst og fremst stafað af móðgandi orðurn, heldur því, að lands- lýður skyldi yfirleitt fá tækifæri til að kynnast aðalefni bréfsins. Ef Alþingi, uppi á jökultindi hefð- ar sinnar, skyldi hafa sézt yfir ýmis- legt, sem sauðsvartur almúginn veitir athygli, þá skal til úrlausnar minnt á einstök dærni. Tuttugu og fimm ára undirbúningi þess, að íslendingar tækju öll mál sín í sjálfra hendur, hefur lokið með því, að Alþingi er sem stendur fyrir sjón- um þjóðarinnar háborg íslenzkrar sundurþykkju og ráðaleysis. Þjóðin finnur sárt til þess að eiga að hefja hina fyrstu göngu vors endurreista lýðveldis undir forustu slíks Sturl- ungaaldar-þings, forustu stjórnar, sem hvorki er mynduð þingræðislega né þingið getur unnið sæmilega með. Mér ofbauð að lesa í sama tölublaði Morg- unblaðsins sem flutti skýrslu dóms-

x

Varðberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Varðberg
https://timarit.is/publication/1920

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.