Varðberg - 08.01.1944, Blaðsíða 9

Varðberg - 08.01.1944, Blaðsíða 9
VARÐBERG 9 rifs, — ef nokkur kaupandi fæst, — og öðru skipi og annari áhöfn feng- in forysta flotans. III. I áðurnefndri grein Mbl. segir um Alþingi, að það sé líkast „stjórnlausu skipi á rúmsjó, sem rekur fyrir vindi og straumi“. Ástæða er til, að íslenzka þjóðin leggi hlustir við þessum alvöru- þrungnu varnaðarorðum. Sérstök á- stæ.ða er til þess nú, þegar líður að úr- slitastund í sambandsmálinu, — máli málanna. Þessi dómur blaðsins er ekkert ó- vitafleipur, heidur vandlega grundað- ur úrskurður reyndra manna, reistur á löngum og nánum kynnum af Al- þingi og tvíbirtur þjóðinni (sbr. hér að framan). Og vafalaust eru þær ekki ó- tryggari forsendurnar, sem Magnús Jónsson, fyrrv. menntamálaráðherra, reisti á þau ummæli sín, um núverandi ríkisstjórn, að hún væri sem „hættu- merki á blindskeri“! — — Að undanförnu hafa ýmsir „ábyrgðarlausir“ en háværir menn, látið hátt um það, að Alþingi (þ. e. meiri hluti þess) og ríkisstjórn hafi nú „talað“ í sambandsmálinu! Alþingi hafi markað stefnuna, sem halda skuli! Þjóðinni, allri og óskiptri, beri að fylgja á eftir, — allir eigi og verði að lúta forystu þess og leiðsögn! Hver sá, sem mögli, eða bregðist boði þings og stjórnar, skuli brennimerkjast sem „kvislingur“, „undanvillingur“„ — „landráðamaður“! Flaggskip þjóðarinnar hefur kveðið upp „kúrsinn“. Flotanum ber að hlýða og fylgja á eftir! - -----Hversu ánægjulegt væri það ekki, að mega nú öruggur fylgja for- ystu þingsins í máli málanna. Mega öruggur treysta sterkri leiðsögn þess að langþráðu lokamarki allra íslend- inga: óskoruðu sjálfstæði og fullveldi íslenzku þjóðarinnar. Enginn íslend- ingur mun vera til, sem ekki elur þessa ósk í brjósti. -----En Alþingi, — flaggskipið, — er stjórnlaust og „rekur fyrir straumi og vindi“, segir Mbl. En þetta þing, sem svo er á sig komið, hefur þó, í bandalagi við núv. ríkisstjórn, ákveðið að koma saman á ný eftir fáa daga, og gera þá út um mál málanna, í trausti þess, að þjóð- in, sem ekki hefur fengið að sjá sjó- kortið né dagbækur skipsins, muni samþykkja „kúrsinn“ athugasemda- laust. — — En þjóðin liefur nú þegar heyrt hættumerkið. Hún hefur þegar heyrt varnaðarorð Mbl., og hún mun vara sig. Hún veit það nú, að það er ábyrgð- arhluti, að fylgja hinu ráðlausa Al- þingi. Hún sér það nú, að það mundi leiða til vansæmdar og ófarnaðar fyr- ir alda og óborna. Þjóðin mun því ekki sætta sig við það, að þing, sem ekki getur stjórnað sér sjálft, taki sér vald til að úrskurða um framtíðarskipun íslenzka ríkisins, að þjóðinni fornspurðri. Hún heimtar fyrst sjókortið og dagbækurnar á borðið! IV. Loks er ástæða til að athuga hvaða áhrif margnefnd ummæli Mbl. kunni að geta haft út á við. Hermann Jónasson, fyrrv. forsætis- ráðherra, mælti þau fleygu orð, að ís- lenzka þjóðin væri nú undir smásjá tveggja stórvelda. Stórveldi þau, sem hann átti v.ið, eru Bretland og Bandaríkin. Vissulega hafa þessi stórveldi nán- ar gætur á öllu því, er fram fer hér á landi; einkum þó öllu, sem varðar af- stöðu íslenzku þjóðarinnar til um- heimsins. Þau fylgjast því vafalaust af sér- stakri atliygli með hinum stórpólit- isku forystugreinum Morgunblaðsins. Og þar eð Mbl. er aðalmálgagn stærsta þingflokksins, munu þessi stórveldi, að vonum, meta uminæli þess og bend- ingar mjög mikils. Þau ummæli Mbl., að Alþingi ís- lendinga sé forystulaust og „líkist stjórnlausu skipi á rúmsjó, sem rekur fyrir straumi og vindi“, munu áreið- anlega ekki þafa farið fram hjá sjón- pípu hinnar ensk-amerísku smásjár. Heldur ekki ævintýrið um hættumerk- ið á blindskerinu. Sú staðreynd, að bæði þessi stríð- andi stórveldi eru jafnframt stærstu sjóveldi heimsins, vcita þeim sérstök skilyrði til að tileinka sér hinar skáld- legu líkingar úr lífi sjómannanna, og sldlja alvöruþunga þann, sem fólginn er í dómi Mbl. Á þessum síðustu og verstu tímum hafa mörg þung orð fallið í garð Al- þingis. En enginn hefur enn kveðið upp þyngri dóm yfir því en Mbl. Og áreiðanlega hafa engin önnur orð um Alþingi vakið óskiptari athygli liinna voldugu verndara vorra Ber margt til þess, ekki sízt það, að þessi dómur Mbl. er kveðinn. upp við lok þess þings, sem fáum dögum áður til- kynnti, hversu og hvenær það mundi ráða til lykta framtíðarstjórnskipun íslenzka ríkisins, og þar með niarka afstöðu þess til umheimsins, m. a. til Bretlands og Bandaríkjanna. Hafi tilgangur Mbl. með ítrekaðri birtingu fyrrnefndrar aðvörunar verið tvíþættur: ‘ annars vegar sá, að vara íslenzku þjóðina við flani og ráðleysis- fálmi hins stjórnlausa þings, og á hinu leitinu að vekjaathyglihinna ensk-amerísku verndara vorra á þeirri hættu, sem ísl. þjóðínni og virðulegri og vinsamlegri sambúð hennar við aðrar þjóðir, væri bú- in, ef farið yrði nú eftir „kúrsin- um“ frá hinu stjórnlausá flagg- skipi, þá er víst, að ritstjórn blaðsins mun að fullu hafa náð þessum tilgangi sín- um. * 23. desember 1942. Málfrelsí? Nýlega fór framkvæmdanefnd lög- skilnaðarmanna þess skriflega á leit við útvarpsráð, að Árna Pálssyni prófessor, Jóhánni Sæmundssyni yf- irlækni, Lúðvíg Guðmundssyni skóla- stjóra, Pálma Hannessyni rektor og Sigurði Nordal prófessor yrði gefinn kostur á að flytja erindi í útvarp fyrri hluta janúar, um lýðveldis- og sam- bandsmálið. 4. þ. m. barst nefndinni svar út- varpsráðs, og var það ALGER SYNJ- UN — án nokkurrar greinargerðar. Þegar málaleitun nefndarinnar hafði verið felld á fundi útvarpsráðs- ins, 30. dés., bar Pálmi Hannesson, sem á sæti í útvarpsráði, fram þá til- lögu, að Sig. Nordal prófessor einum yrði þá gefinn kostur á að flytja tvö erindi í útvarpið um sama mál. Tillögu þessari var vísað frá með rökstuddri dagskrá, þess efnis, að eigi væri í ráði að ræða þetta mál í út- varpinu fyrst um sinn! Tveim dögum síðai', á nýársdags- kvöld, hafði Eggert Stefánsson orðið!!

x

Varðberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Varðberg
https://timarit.is/publication/1920

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.