Varðberg - 08.01.1944, Blaðsíða 10

Varðberg - 08.01.1944, Blaðsíða 10
It VARÐBERG JÓN ÓLÁFSSON: , r . ;> Hver er nú réttargrundvöllurfnn? Hin örlagaríku straumhvörf í sam- bandsmálinu gerðust snemma árs 1941, er ráðherrar Sjálfstæðisflokks- ins, Ólafur Thors og Jakob Möller, fengu Bjarna Benediktsson, þáverandi prófessor, til þess að gera rökstudda greinargerð um málið, og hann komst að þeirri niðurstöðu, að Danir hefðu vanefnt (violated) sambandssáttmál- ann og „að riftingarréttur væri ótví- ræður í þvílíku tilfelli sem þessu“. Áhrifin komu þegar í ljós í fyrri hluta ályktunar Alþingis 17. maí 1941, þar sem Alþingi telur ísland hafa öðlazt rétt til fullra sambandsslita við Dan- mörku. Eftir þetta hélt Alþingi og ríkisstjórn fram riftunarrétti leiddum af vanefndum og mótaðist öll með- ferð málsins af því síðan. Þegar Al- þingi og ríkisstjórn á árinu 1941 gerði ráðstafanir til endanlegra sambands- slita á ofannefndum grundvelli, þá var þetta hindrað af ríkisstjórn Bret- lands. Tilraun til hins sama var gerð árið 1942, en þá strandaði málið á íhlutun ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Þeir, sem valdir hafa verið að þess- ari málsmeðferð, hafa talið þjóðinni trú um það, að Bretar og Bandarík- in hafi hlutazt til um meðferð máls- ins af því að þeir hafi talið sér geta stafað óþægindi af slíkri lausn þess, sem til stóð. — Ekki hefur þjóðin fengið að vita til fulls hvernig íhlut- un nefndra ríkja hefur verið. Nokkuð má ráða af upplýsingum Ólafs Thors, þáverandi forsætis- og utanríkismála- ráðherra, í ræðu hans 5. október 1942, sem birt var í Morgunblaðinu 7. s. m. — Þar skýrir hann frá því, að 26. júlí 1942 hafi einn af aðalráðamönnum Bandaríkjanna komið hingað til lands og ineðal annars tjáð sér að andstaða ríkti gegn því í Bandaríkj- unum, að íslendingar slitu samband- inu við Dani fyrr en sambandssátt- málinn segði til um. Þegar því hafi verið svarað þar til af Islands hálfu, að sá samningur vœri að alþjóðarétti úr gildi jallinn, þá haji liann svarað því til, að slíkt gœti alltaf verið álitamál. Þetta svar talar sínu máli. Ég hygg', að ráðherrann hefði þá átt að hug- leiða það vel og rannsaka, hvort ekki fólst í því fullyrðing um það, að svo væri á litið, að samningurinn væri ekki úr gildi fallinn. — Hvað sem því líður sést greinilega síðar í frásögn ráðherrans, að megin áherzla hejur verið lögð á það, af hálfu ríkisstjórn- ar Bandaríkjanna, að samningurínn yrði að vera ótvírœtt út runninn (ex- pired) ejtir ákvœðuni hans sjáljs. Hinn 31. júlí barst símskeyti frá sama aðila, sem áréttaði yfirlýsinguna frá 26. sama mánaðar. Svona eru hrakfarir vanefndakenn- ingarinnar, tvisvar hefur hún leitt yf- ir þjóðina íhlutun erlendra stórvelda og við vitum ekki enn, hve mjög hún hefur bakað þjóðinni tjón og álits- hnekki út á við. Ég hef haldið því fram, að vanefndakenningin væri röng, sjá t. d. greinar í vikublaðinu íslandi 1. september og 22. nóvember þ. á. og í grein í bæklingnum Ástandið í sjáljstœðismálinu, bls. 52—59. Margir gerðu ráð fyrir því, að kyrrt mundi verða um málið eftir þessa útreið, þangað til öruggur grundvöllur fengist til að leysa það á, en sú von brást um mánaðamótin júní—júlí s.l., er Bjarni Benediktsson hélt ræðu mikla á Þingvöllum, er síð- an var sérprentuð að tilhlutun Mið- stjórnar Sjálfstæðisflokksins og send inn á hvert heimili landsins eins og sum dagblaðanna sögðu. Þá var her- væðst á ný og málinu enn haldið fram á sama grundvelli. Síðan hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Fram- sóknarflokksins og kommúnista, haldið inálinu fram á Alþingi. Afstaða ríkisstjórnar þeirrar, er nú situr, var ókunn, þar til hún gaf út yfirlýsingu um afstöðu sína til máls- ins 1. nóvember s.l. og dómsmálaráð- herrann, Einar Arnórsson, lýsti henni nánar í ræðu, er hann hélt 1. desem- ber s.I. og birtist í dagblaðinu Vísi 8. sama mánaðar. Þar koma alveg ný sjónarmið til sögunnar og nýr réttargrundvöllur. Það ætti hverjum að vera ljóst, að hann er allt annars eðlis en riftunar- réttur sá, sem byggður var á van- efndakenningunni. Eftir nýju kenn- ingunni er sambandssáttmálinn fall- inn úr gildi. Hvenær það hefur gerzt, er ekki sagt, en það hefur hlotið að gerast einhverntíma frá 9. apríl 1940 til 1. nóvember 1943, er ríkisstjórnin gaf út boðskap sinn. •— Það er engan veginn víst, að grundvöllur sá, sem ríkisstjórnin hefur komið fram með, reynist réttur. Hann samrímist ekki vanefndakenningunni og er ekki ann- að að sjá, en að hann kippi fótunum undan riftunarréttinum, en hins veg- ar mun ríkisstjórnin segja,aðriftunar- rétturinn sé óþarfur, þar sem lögin séu fallin úr gildi. En hvað hafa þá ríkis- stjórnir íslands og Alþingi undanfarið verið að glíma við? Enn má spyrja: Hvernig samrímist þetta afstöðu Bandaríkjanna árið 1942? Og hvernig samrímist þetta. aðgerðum íslenzku ríkisstjórnarinnar það ár? Þegar þá- verandi ríkisstjórn í júnímánuði 1942 sendi konungi og ríkisstjórn Dana skýrslu um allt málið, þá hlýtur hún að hafa gefið ákveðinn grundvöll til kynna, sem framkvæma ætti bráðan skilnað á. Grundvöllurinn hlýtur að hafa verið sá, sem þjóðinni hafði verið gefinn til kynna, sem sé van- efndakenningin. Hvað hefur heyrst frá dönsku ríkisstjórninni síðan? Hvernig liti það út að koma nú á síð- ustu stundu með annan réttargrund- völl, ég tala nú ekki um, ef hann reynist eins tilbúinn eða haldlaus og sá fyrri? Menn verða að gera sér Ijóst, að fullyrðingar eru engin rök, að röng beiting gildandi kennisetninga er hættuleg hverju máli og að blekk- ingar í málflutningi setja blett á þá, sem þeim beita. Hinn 29. nóvember s.l. sendu nokkrir menn stjörnarskrárnefnd, Al- þingi og formönnum stjórnmálaflokk- anna tillögur til samkomulags um lausn sambandsmálsins. Þeir álitu raunar — ekki sízt vegna meðferðar málsins undanfarið og ríkjandi á- stands í báðum löndum — æskileg- ast að bíða viðræðna við Dani, en þeir vildu reyna að koma málinu á grundvöll, sem þeim virtist öruggari og betur við eigandi en sá, sem yfir- lýstur hafði verið af svokölluðum hraðskilnaðarmönnum. Efnislega hafa tillögur þessar ekki sætt neinni gagn- rýni, en flokksblöð hraðskilnaðar- manna, sem sumir nú kalla brott-

x

Varðberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Varðberg
https://timarit.is/publication/1920

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.